be[¡]kon

26.1.04
 
Ég er kominn með eitthvað æði fyrir Japönskum, blóðugum, listrænum Yakuza/hryllingsmyndum.

Ég horfði á myndina Ichi the Killer (Koroshiya 1)um helgina. Mynd þessi fjallar um lítið annað en pyntingaraðferðir yakuza hópa í japan og svoleiðis.... mjög blóðug en bara svo ótrúlega flotttt og smekkleg. Þessir japönsku leikstjórar (og líka Tarantino) gera ofbeldissenur svo ótrúlega smekklegar og fallegar að það er bara best. (Peter Jackson gerði þær bara fyndnar, ekki mjög fallegar í sínum eldri/heldri? myndum).

Núna langar mig bara að eyða hellings af pening í Japanskar Yakuza DVD myndir... en ekki í geisladiska! Safnið mitt er bara orðið svo fínt að mig langar eiginlega ekki í neitt... Pabbi minn fór til Hollands um daginn og bauðst til að kaupa eitthvað og mér datt bara eiginlega ekkert í hug sem mig langaði virkilega í. Ég fékk bjórkippu í staðinn. Kannski ég fari bara að safna einhverjum hip og happenin cult bíómyndum frá japan og öðrum löndum. Kannski einhverjar bollývúdd myndir. Og Party Monster, nýju myndina með Macaulay Culkin þar sem hann leikur morðóðan og ungan skemmtistaðar eiganda á móti Seth Green. Þessi mynd hefur bara ekkert birst hér á landi og ég er mjög reiður. Búnað verað bíða heillengi.
Poohey.
Það vantar einhver svona indí bíóhús hérna í reykjavík sem sýna svona hip og kúl indí/költ bíómyndir. Ég held að það myndi vera frekar vinsælt.
Samt er alltaf fáránlega gaman að monta sig af öllum þessum myndum sem maður hefur séð og neimdroppa hellings af költ bíómyndum og fólk er bara eikkað hmm... ókei... flott pétur, Artí-fartí-indí-plebba-lúðinn þinn....
EN Í RAUN ER ÞAÐ BARA ÖFUNDSJÚKT ÞVÍ ÉG ER SVO KÚÚÚÚÚLLLL OG EKKI ÞAU OG ÞAÐ ER BARA GEGT OG JÁ....
*ræskj*


Fleiri, fleiri linkar....

Kári "plebbi" Finnson
Hjörtur Ekki-úlfur
Þóra dani

Fleiri, fleiri plötur

Pavement - Slanted & Enchanted
Kimono - Mineur aggressif
The Raveonettes - Chain Gang of Love
The Rapture - Echoes

og að lokum eitt fyrir þá sem vantar einhvern til að elska...