be[¡]kon

23.3.04
 
All your wings have fallen down, all your dreams are over now.

Heyrði ég er ég skrifaði þetta niður... ég er nefnilega svo mikill hrokabloggari... ég hef ekkert að segja þannig að ég tala bara um hvað ég á lítinn pening og hvaða tónlist mér finnst skemmtileg, því ég veit að það er eitthvað fólk sem les þetta og ég nenni ekki lengur að ná til lesenda minna. Mér finnst það ömurlegt. Ég reyndi um daginn að breyta til, en það varð að einni stórri s?urnin?armerk?a klessu.
Örlögin eru greinilega að skila því til mín að ég eigi að hætta þessu blogg-kjaftæði, þar sem þetta er að eyðileggja tímann minn, sem ég hef, dýrmæta tímann sem ég gæti notaðí allskonarhluti, tildæmis, til að stunda námið sem ég á að stunda, en stunda ekki, já, stundirnar eru verðmætar, það þýðir ekki að stunda hluti sem maður á ekki stund fyrir þar sem maður þarf að stunda ýmsar aðrar tóm-stunda iðjur. En svo hugsar maður: "Ég á örugglega eftir að lifa í svona 60 ár í viðbót" og ætti maður nokkuð að eyða þessum stundum sem maður hefur í eitthvað "skynsamt" eða á maður að eyða þeim í það sem manni finnst "gaman"? samt finnst mér þetta ekkert svo gaman, ég bara geri þetta því ég get ekki hugsað mér að vera "skynsamur". Djöfull er þetta leiðinlegt, ég veit ekkert hvað ég er að segja lengur og ég myndi aldrei nenna að lesa þetta til enda. væl, væl, væl. Ég geri ekkert annað. Jæja. Ég blogga kannski aftur á morgun. Kannski eftir mánuð eða aldrei. Ég hef ekki hugmynd um það.

Plötur:
TV On The Radio - Desperate Youth, Bloodthirsty Babes
The Unicorns - Who Will Cut Our Hair When We're Gone?