be[¡]kon

29.3.04
 
Ég er að fara að flytja. Við fengum húsið afhent í dag, en ég á enn eftir að sjá húsið, ég var nefnilega ekkert spurður álits þegar húsið var skoðað, það er núþegar búið að skipa mér herbergi og ég veit bara hvernig þetta hús lítur út samkvæmt blú-printinu og nokkrum ljósmyndum... Þetta er mjöög spennandi og það verður nú gaman að komast loksins inní húsið sem ég er búinn að vera að bíða eftir að sjá í svona 4 mánuði...
Ég þorði nefnilega aldrei að banka á dyr og segja: "hei, foreldrar mínir voru að kaupa þetta hús, má ég sjá...?"
Kannski hefði ég samt átt að gera það. Jæja núna er of seint... Núna hef ég þó bara svona viku til að ákveða hvernig ég ætli að mála þetta herbergi mitt... sem verður nú ekkert voða mikið stærri en það herbergi sem ég hef núna... sem er btw. gamalt kjallara íbúða eldhús, ég kem samt örugglega rúmi fyrir þarna inni. Svo fæ ég afnot af stofuplássinu á neðri hæðinni, þar sem ég gæti komið upp heimabíói og bar og svona.
Bar... góð hugmynd.
Hver kemur á barinn.... ég læt bjóða mér....
nei.

Annars segi ég para X-Simbi í Beneventum. Við höfum ekkert mótframboð en við verðum samt að auglýsa okkur og kaupa atkvæði sumra ósjálfbjarga einstaklinga á fyrsta ári sem láta ekki bjóða sér ekkert.

Svo gleður mig mikið að samkvæmt þessari síðu eru The Thrills að spila á þessarri hátíð sem ég er að fara á í sumar. ójá.

Plötur:
Franz Ferdinand - Franz Ferdinand
The Flaming Lips - The Soft Bulletin