be[¡]kon

3.3.04
 
Hérna, það er kominn mars. Þá verður marshérinn brjálaður.
Hvað er það samt við mars sem gerir hann svona brjálaðan? Er það tilkoma sólarinnar? Jafndægur? Eða er hann bara graður?

Þegar ég átti samskipti við brunahana þá átti ég stein um hálsin, en þegar ég yfirgaf hann þá var steinninn farinn. Það hlýtur að vera útaf þessum disklingi sem ég fékk í pósti, hann innihélt vírus frá landnámsöld.

Nei, ég er ekki með Aids.

Ég skrifa þetta hér meðan ég veit ekki hvaða tíma ég á að vera í. Landafræði er í næsta tíma, franska er á þri. fim. og fös. íslenska var í seinasta tíma, nát er á þri. fim. og fös, fél. er líka á þri. fim. og fös. hvað gæti hugsanlega verið í þessum tíma? Ég er í fjallgöngu, hún er pottþétt ekki núna. Ég er eigi í stærðfræði. Þetta eru samt bara fimm áfangar, ég er viss um að ég sé í einum í viðbót, en bara hvað? Er hann kannski bara til aðra hverja viku? Verður hann til við samruna kennsluaðferða? Hvað er að gerast í hausnum á mér akkúrat núna?

Plötur:
Air - Talkie Walkie
Smashing Pumpkins - Siamese Dream
Franz Ferdinand - Franz Ferdinand
Björk - Homogenic