be[¡]kon

4.3.04
 
Já, ég er að spá í að endurvekja listasíðuna mína og hafa svona topp 5 plötur og lög svona í hverri viku, þó það sé nördalegt en ég hef bara svo nördalegan tónlistaráhuga. Ahem.

Hann verður alltaf tilkynntur á hverjum fimmtudegi og verður hip.

Djöfull fer í mig þegar plötufyrirtæki lofa að flytja inn einn disk á ákveðnum tíma svo kemur hann ekki fyrr en 2 vikum - mánuði seinna. *pirr*

Ég ætla síðan núna formlega að hlusta einungis á urban sýru jazz næsta mánuðin og skoða hvort lífsviðhorf mín breytast á einhvern hátt. Takk fyrir.

Guð má vita hvað kemur næst.

En þið megið líka vita hvað kemur næst,

næst kemur sagan af Guðmundi á hof-sósi.

Einu sinni var lífvörður sem hét Kristjárn. Hann fékk sér kokteilsósu á brauð alla þriðjudaganna í mars, júní og koþrækóbisk. Þegar hann fékk krabbamein í vinstra litlaputtanöglina sína, varð hann ævareiður og sagði, hvernig á ég núna að setja kokteilsósu á brauðið mitt alla þriðjudaga í mars, apríl og koþrækóbisk?
Þá sagði Yehudi Menhuin, ég kem til bjargar, og hann flaug niður hope street og náði í gjafapappír til að pakka inn gjöfinni sem hann átti að gefa frænku sinni í Madrid en náði ekki að kaupa hana á góðum tíma vegna annríkis í fiðluleikara/ofurhetjubransanum. Svo datt Guðmundur oní gryfju þegar hann var að ganga upp Kvesjuna í hof-sósi.

Fin.

Hvernig fannst ykkur?

a) naglaþjöl.
b) frekar spennandi svona þangað til að hamsturinn minn beit mig og reif allar rósirnar í garðinum.
c) það á ekki að vera í sambúð með hömstrum.
d) já.
e) þetta var besta saga sem ég hef lesið, hún á skilið nóppel verðlaunin.

Plata dagsins: Wilco - Yankee Hotel Foxtrot