be[¡]kon

6.3.04
 
Svo eru Pixies bara að koma til Íslands, eiginlega eina ástæðan fyrir hróarskeldu för minni, en ég held ég nenni því barasta ekki þá núna. Ég held að ég fari nú bara til Eistlands til að gera mömmu glaða, og skreppa á T in the park þessa einu helgi þarna í Júlí. Sorrí pípúl hú vör expekting mí in Roskilde, it vil hev tú veit anöðer jer or sú. Nema náttúrulega ef Radiohead spila þar. Þá verður barasta ENGIN undantekning. Ég er samt svolítið að draga þetta á langinn. Ætli það verði einhvurjir miðar eftir þegar (ef þeir gera það) Radiohead staðfesta komu sína...? Æ dónt nó. Ðis is só hard, men, kan jú hóld ðis for mí, æm getting kænd of tæörd. Sjía! Ðats vott sjí sed! Sjvíng!!

Jájá. Talandi um Pixies... hvar er og hvað er Kaplakriki? Er þetta alveg nógu stórt? Hvernig er hljómburðurinn? Er þetta jafn bjullí og Laugardalshöllin eða bara ferskara?

En, já. Radiohead. Þeir eru bestir. Þeir eru einmitt að spila hér. Ef þetta er ekki drauma læn öpp þá veit ég ekki hvað, svo eru þetta bara tveir dagar. Sjitt.

Já, tónlistarhátíðir út um allt, bara ef maður ætti ca. milljarð, þá gæti maður stundað þetta - og keypt allt mörtjið...

Hvernig væri það annars ha? Að bara gefa mér milljarð? Eða kannski vinnigs lottó tölurnar fyrir kvöldið í kvöld. Er lottóið kannski búið? Æj ég veit ekki. Allavega næsta laugardag. Eða bara Víkinga lottó, það er á miðvikudögum, en minni vinningslíkur (6 tölur, ekki 5)

Það er fullt af flottum Camper skóm í Kron. Svo er líka voða flottur leðurjakki í Spúútnik sem er aðeins of dýr eins og er, en ég meina, lottótölur...

5, 8, 23, 26, 39 B: 15

Ef þetta eru réttu tölurnar þá ætla ég að skjóta mig.

Plötur dagsins:
Beth Gibbons & Rustin' Man - Out Of Season
Dizzee Rascal - Boy In Da Corner