be[¡]kon

22.4.04
 
Alltaf þegar ég ákveð að baka (eins og ég gerði í dag) lendi ég alltaf í því að þurfa að fara ekki einu sinni heldur tvisvar sinnum út í búð að kaupa efnið í baksturinn. Áðan ákvað ég að steikja svona amerískar pönnukökur. Einfaldari ´gæti það varla verið, en það voru ekki til egg. Það var til hveiti, smjör og allt saman, ég sá einhverja lyftiduftsdós þarna og glæra dós sem hlyti nú að innihalda matarsóda. Ég labba rólegur útí búð, kaupi egg, sprite og rjóma til að hafa með og þegar ég kem aftur fer ég að setja hveitið í skál og svona. Ég fer inn í búr, sé að það sem ég hélt að væri matarsódi var bara alls eki matarsódi, heldur hjartarsalt. Jæja, það er þó hægt að sleppa sódanum í svona uppskriftum, setja bara aðeins meira lyftiduft. Er svo ekki bara dósin tóm. Helvítis. Ég dröslast aftur alla leið útí búð og kaupi þetta sjitt, kem heim og steiki pönnukökurnar. Þetta kemur alltaf fyrir, jafnvel með einfaldar uppskriftir eins og amerískar pönnukökur... hvað þá vöfflur. Einu sinni þurfti ég að fara í þriðja skiptið að kaupa rjóma, eftir að hafa þurft að kaupa fyrst sykur, síðan egg (Það virðist alltaf vanta eggin, ég veit ekki afhverju). Og það var líka um kvöld, eftir 20:00 þannig að ég gat ekkert farið út í lókal melabúðina mína, heldur alla leið inn á Hjarðarhaga í 10-11. Fokking sjitt.

Plötur dagsins:
Stina Nordenstam - People Are Strange
Rúnk - Ghengi Dahls