be[¡]kon

15.4.04
 
Þegar fornbílar eru komnir á göturnar þa veit maður að það er lítið eftir af skólanum.

Vá hvað ég nenni samt ekki að vera í skólanum þessu síðustu daga, þetta páskafrí fór alveg með mig. Þar sem ég er að flytja hafði ég ekki annara kosta völ en að mála nýja húsið eða vera heima og læra. Svoleiðis á páskafrí ekki að vera. Ég veit ekki hversu mikið mig hefur langað til að hanga annar staðar en heima hjá mér, meðan sólin var úti og maður var ekkert í skóla, rölta niður í bæ og bara hanga, rölta um og drekka gott kaffi. Sem minnir mig, ég prófaði þarna nýja kaffigaurinn í gær, á lækjartorgi. Lattéið kostaði bara 150!!! (reyndar var það útaf einhverju barþjóna móti... en hei!) það var mjög gott. Þetta verður örugglega svona staður þar sem snobbaða fólkið sem er of fínt fyrir strætósjoppuna (eins og ég....) á eftir að bíða eftir strætó og svona, sötrandi á macchiato með kanil og mjólkurfroðu.

nóg í dag.

Plötur:
Liars - They Were Wrong, So We Drowned
I, I, I, I want to be a horse!
Radiohead - The Bends
I wish it was the sixties, I wish I could be happy...