be[¡]kon

5.4.04
 
Það er svo gott að hafa nóg fyrir hendi á svona frídögum, þó það hljómi ótrúlega, þá finnst mér geðveikt að vera ekki í einhverju afslappelsi í páskafríinu (nem auðvitað á páskadag, þá stefni ég á að geta ekki hreyft líkama minn vegna eggja og kjöt áts). Þessa daganna er ég að mála, flytja dót til, læra (kannski... jú... maður verður), æfa með hljómsveitinni minni og syngja með kórnum. Ef ég hafði þetta ekki væri ég einhverstaðar í ræsinu núna að láta mér leiðast og fá ógeð af tónlist því ég væri bara að hlusta alltof mikið á hana.
Annars fann ég hið ágætasta share-forrit um daginn, sem heitir soulseek. Þar hef ég niðurhlaðið stanslaust nýjum og ferskum diskum sem ekki fást á íslandsbyggð. Og því sem ég tími ekki alveg að kaupa mér. Núna fagnar hjartaða mitt á hverjum degi, því að tónlist í heiminum í dag er ótakmörkuð.
Hvað er með fólk sem fattar ekki þegar fólk er ekki alvarlegt? Fólk sem lifir bókstaflega í stærðfræðilegum heim, þar sem ekkert er óútreiknanlegt verður að finna gátt í hinn almenna heim þar sem engin takmörk eru sett fyrir neinu. Líka fólk sem skammast sín fyrir gjörðir manns, sem eru af óalvarlegum toga á greinilega virkilega erfitt, ég meina, þegar maður er í lokuðu rými og maður er að gera eitthvað asnalegt í góðra vina hópi, á maður ekki að þurfa að horfa í aðra átt og þykjast vera kúl. Líka ef maður er í bíl og þrýstir Pepsi Max flösku á gluggan fyrir framan annan bíl, ætti maður að finna sér öflugri kömbakk en að þrýsta batteríi í gluggan...

"Það er rautt ljós!!!" - "Það er í lagi, það er grænt hinu megin"

Ég hitti Katrínu í Mammút í gær í fermingarveislu. Mér fannst það fyndið, ég hefði líka örugglega aldrei talað við hana væri hún ekki fræg í dag.

Svo vil ég biðja stjórn nfmh 2004/5 að halda næstu stórfélagsferð á miklu aðgengilegra og minna subbulegri stað. Þetta var hörmung. Annars var fólkið hresst, en það skiptir auðvitað mestu máli.

Ég vil einnig vekja athygli á dáðadrengjaleiknum, lesa má um hann hér... a rum dum gorbatjov!!!

Mér finnst alkynhneigð fyndið orð.

Plötur:
Pixies - Bossanova
Pixies - Trompe Le Monde
Deerhoof - Apple O'
Air - Talkie Walkie
TV On The Radio - Desperate Youth, Bloodthirsty Babes