be[¡]kon

26.4.04
 
Þessi færsla átti að vera meðfram þessarra lína (along these lines) - Þá er kjaaallinn bara kominn með miða á the big T, djöfull verður þetta feitt sjitt... - En svo er ekki. Í gær þegar ég var kominn við tölvuna, með mömmu við hlið mér sem hélt á sínu ágæta kreditkorti til að slá inn númerið á síðu ticketmaster í skotlandi, þá gat ég bara alls ekki keypt miða. Það stóð bara currently not on sale þar sem stendur venjulega on sale now. Þá varð ég ekki glaður, einungis Stina Nordenstam gat bjargað mér (Og það gerði hún, ójá). Svo vildi það þannig skemmtilega til í dag að auka upplag af miðum á hina ágætu tónlistarhátíð birtust á netinu, ég sá þetta í skólanum og dreif mig í fyrsta strætó eftir skóla og beint heim í tölvuna, og þar stóð enn, on sale now... Ég klikka á linkinn, slæ inn fjölda miða sem ég ætla að kaupa (einn) og ýti á continue... þá stendur bara allt í einu, no more tickets available...... Fokking sköllfökk. Þá virðist öll von vera úti um að ég sjá þessa fínu listamenn troða upp í einu í þessarri stórborg Skotlands.

Ég er farinn að bíta í súrt epli og horfa á meistaraverk Tarantinos á stafrænum mynddiski.

Takk fyrir mig

Plata vikunnar:
Stina Nordenstam - People Are Strange


Fleiri plötur:
The Roots - Things Fall Apart
Eighties Matchbox B-Line Disaster - Horse of the Dog
The Strokes - Room On Fire