be[¡]kon

29.4.04
 
Helvítis DV!!

Í dag var birt frétt um hljómsveitina Gaur í slúðurdálki blaðsins. Þar var okkur bendlað við eiturlyfjanotkun. Þar stóð „Orðið Gaur er nú oft notað í daglegu tali um eitt gram af hassi í undirheimum Reykjavíkur. Hljómsveitarnafnið gæti þá staðið fyrir eitthvað allt annað en fólk heldur í fyrstu." Svo var hann einnig að tala um að nafnið okkar sé stolið og hafi einu sinni verið nafn hljómsveitarinnar Klink þegar einhverjir liðsmanna hennar tóku þátt í músíktilraunum. Þetta eru náttúrulega algjörlega út í hött. Í fyrsta lagi er þetta ekki svo algengt orð yfir hass, pælingin á bakvið nafnið Gaur var, að þetta orð væri svo hlutlaust, það gengur sem orð yfir bæði karlkyns og kvenkyns verur, og allskonar hluti, fólk út um allan bæ talar um allskonar hluti sem Gaur, t.d. „réttu mér gaurinn þarna“ eða „svo fer þessi gaur hingað“ og fannst liðsmönnum hljómsveitarinnar þetta frekar skondið. Í öðru lagi gæti þetta haft slæm áhrif á gangi hljómsveitarinnar, þar sem eru mögulega yfirvofandi einhver gigg fyrir grunnskóla krakka, og einnig er staðfest núna spilerí á bindindishátíðinni á Galtalæk. Skólastjórnendur og félagsmiðstöðvar gæjar gætu auðvitað lesið þessa grein og hugsað, guð þetta eru bara eintómir dópistar, ha, þýðir ekki að láta þá spila á svona opinberum stöðum sem styrktir eru af ríkinu/borginni.
En með þessum pistil vil ég skora á fólk til að forðast þetta málgagn, og ekki kaupa það, gera sem best í að styrkja ekki þetta blað og ég tala ekki einu sinni um allar hinar greinarnar sem birtar hafa verið án leyfis fólksins sem fjallað var um í DV (t.d. Prestamálið, læknadæmið og auðvitað Neskaupstaðarsjokkið).
Rænið blaðinu úr öllum sjoppum og brennið það! Segjum nei við Bandarískum blaða-fyrirmyndum!
Segjum já við málfrelsi með tilliti til siðferðis!

Annars var ég á gríðarlegum tónleikum hjá Sinfóníunni. Hún spilaði ekkert annað en Níundu Sinfóníu Beethovens sem er bara eitt undraverðasta tónverk mannkynsögunnar, priceless laglínur, frábært samspil milli hljóðfæra og ógleymanlegur kórall. Mhmm

Tónlist:
Ludwig van Beethoven - Sinfónía nr. 9 í d-moll, op. 125
Radiohead - Karma Police (singúll)
Kill Bill vol. 1 OST