be[¡]kon |
|||||||||||||||||||||||||||||||
|
div class="%20ut&%20yfir&%20inn&%20undir"
align="center" color="#FFFFFF"
[/table]
Archives Apríl 2008 Mars 2008 Febrúar 2008 Janúar 2008 Desember 2007 Nóvember 2007 Október 2007 September 2007 Ágúst 2007 Júlí 2007 Júní 2007 Maí 2007 Apríl 2007 Mars 2007 Febrúar 2007 Janúar 2007 Desember 2006 Nóvember 2006 Október 2006 September 2006 Ágúst 2006 Júlí 2006 Júní 2006 Maí 2006 Apríl 2006 Mars 2006 Febrúar 2006 Janúar 2006 Desember 2005 Nóvember 2005 Október 2005 September 2005 Ágúst 2005 Júlí 2005 Júní 2005 Maí 2005 Apríl 2005 Mars 2005 Febrúar 2005 Janúar 2005 Desember 2004 Nóvember 2004 Október 2004 September 2004 Agúst 2004 Júlí 2004 Júní 2004 Maí 2004 Apríl 2004 Mars 2004 Febrúar 2004 Janúar 2004 Desember 2003 Nóvember 2003 Október 2003 September 2003 Ágúst 2003 Júlí 2003 Júní 2003 Maí 2003 |
25.5.04
Þá er ég byrjaður að vinna... Og er þetta alveg hin fínasta vinna. Sláttur og allt tilheyrandi í borgargörðunum í laugardal. Ég var að búast við einhverju svaka puði og púli og einhverjum hnakka-kollegum, en þetta er bara fínasta fólk, m.a. er Jón Þór annar gítarleikari Ísidor annar flokkstjórinn minn, það hlýtur nú bara að teljast frekar fínt. Svo er maður bara annaðhvort að slá eitthvað svona dót með Sonic Youth í eyrunum (og allt í kring líka...) eða þá bara með hrífu í hendi og gott spjall við gott fólk... jájájá. Annars eru líka fullt af svona man-jobs "sem að stelpurnar/kjeellingarnar ráða ekki við" (Tjaa... yfirflokkstjórinn er svona útbrunninn þrítugur "karlmaður")eins og að flytja bekki um allan garð og keyra um í pallbílum og gá hvort að það sé nokkuð af pokum svona á svæðinu.
Svo er Erla þarna í næsta bæ við, skrúðgörðunum... og Björg hinu megin í Grasagörðunum, svo er Frikki á vappi þarna í Húsdýra og Fjölskyldugarðinum... ægilega fínt. Allavega, ég er búinn að velja mér nýja uppáhaldsmynd. Hún heitir 24 Hour Party People og fjallar um hið frábæra tónlistarlíf í Manchester frá 76 - 92 minnir mig, Joy Division, Happy Mondays og hinn frábæra pródúser Martin Hannet og svo auðvitað ris og hrun Factory Records.
Alveg ótrúlega skemmtileg mynd fyrir þá sem fíla breta og indí tónlist. Einnig fannst mér athyglisvert að sjá Happy Mondays þarna á ferð og hugsa, heyrðu þeir spiluðu í muthafuckin' NKJ fyrir tæpum 15 árum... (15 ár??!!! sjitt... ðö næntís eru bara óld njús... sjitt...!) Afhverju eru ekki einhverjar góðar erlendar hip indí sveitir að spila í NKJ í dag? Ha? Ég vil fá The Unicorns skiluru... kannski maður sendi þeim ímeil og fái þá til landsins.. þeir geta bara gist í stofunni í nýja húsinu! Mega Mad-Sex. ... The Unicorns á innipúkan! það væri tilvalið, krakkar... hugsa sér line-öppið... Mugison, Hudson Wayne, Dáðadrengir jafnvel eða Mammút?, Trabant, Rúnk og The Unicorns! frábært! Jamms og kjamms, nóg í dag... Plötur: Portishead - Portishead
Sonic Youth - Dirty
The Streets - Original Pirate Material ![]() |
||||||||||||||||||||||||||||||