be[¡]kon |
|||||||||||||||||||||||||||||||
|
div class="%20ut&%20yfir&%20inn&%20undir"
align="center" color="#FFFFFF"
[/table]
Archives Apríl 2008 Mars 2008 Febrúar 2008 Janúar 2008 Desember 2007 Nóvember 2007 Október 2007 September 2007 Ágúst 2007 Júlí 2007 Júní 2007 Maí 2007 Apríl 2007 Mars 2007 Febrúar 2007 Janúar 2007 Desember 2006 Nóvember 2006 Október 2006 September 2006 Ágúst 2006 Júlí 2006 Júní 2006 Maí 2006 Apríl 2006 Mars 2006 Febrúar 2006 Janúar 2006 Desember 2005 Nóvember 2005 Október 2005 September 2005 Ágúst 2005 Júlí 2005 Júní 2005 Maí 2005 Apríl 2005 Mars 2005 Febrúar 2005 Janúar 2005 Desember 2004 Nóvember 2004 Október 2004 September 2004 Agúst 2004 Júlí 2004 Júní 2004 Maí 2004 Apríl 2004 Mars 2004 Febrúar 2004 Janúar 2004 Desember 2003 Nóvember 2003 Október 2003 September 2003 Ágúst 2003 Júlí 2003 Júní 2003 Maí 2003 |
8.5.04
Langir prófdagar eru ekki málið. Ég þarf tónlist. Alltaf. Helst háværa. Ég dett úr jafnvægi ef ég heyri ekki háværa tónlist af og til. Þegar það eru engar hljómsvetiaræfingar, verð ég algerlega hugsunar og einbeitingarlaus. Fyrir utan að geta hugsað um tónlist. Er þetta fíkn? Ég vissi ekki að það væri hægt. Hávaða fíkn, tónleikafíkn, geisladiska-eignar-fíkn. Tónlistarfíkn. Þetta er engin slæm fíkn, jújú, þetta kostar pening (eins og allt) en sem betur fer fæ ég engan sjúkdóm útfrá þessu. Þvert á móti, ég lifi á þessu. Ég get ekki ímyndað mér hvað skyldi verða um mig ef ég myndi klúðra tónlistarnáminu mínu (eins og öðru námi... eðá, þúst, lágmarkseinkunn dugar ekki í alvöru námi). Það myndi sogast úr mér allur vilji.. ég hefði engan drifkraft. Myndi ég ekki bara visna og deyja? Tónleikar? Ég myndi náttúrulega eyða öllum penging sem ég gæti eytt í þá. Ég þarf að eiga tónlistarferil í framtíðini. Annars gæti ég alveg eins farið á elliheimili og barðað sagógrjón í öll mál. Með kanilsykri. Namm. (Ágætis hugmynd reyndar, kannski maður bara leggi sig inn...?) Mér finnst ég bara ætti að vera strax kominn á framabraut. Ég er búinn að koma mér í eitthvert hálfgert vonleysi. Allskonar fólk í kringum mig er svo ofboðslega klárt í svona lögðu, jújú, ég er alveg klár, en bara ekki nóg... ekki eins og aðrir. Þetta fólk er líka metnaðarfylrra, gerir hluti sem ég vill gera en geri bara ekki, eyðir peningnum sínum í hljóðfæri og svoleiðis, í staðinn fyrir geisladiska. Ég er 18 ára og mér finnst ég vera búinn að klúðra starfsferil mínum. Allt útaf einhverri helvítis minnimáttarkennd. Það er samt út í hött að gefast upp núna.
Pródúser? Vonandi. Ég kann samt ekkert á þetta, og fullt af fólki í kringum mig er alveg á fullu í þessu, sjálflært, því það ákvað að kaupa græjurnar og leggja þetta fyrir sig. Strax. Ég kann ekki jack shit. Og ég stefni á nám 22 ára. Er það ekki asnalegt? Ætli það nokkuð... Ég þarf að læra á gítar. 1,2 og byrja. Ef þið hafið lesið þetta allt, þá eruð þið virkilega ótrúleg og ég þakka ykkur fyrir. Plötur dagsins: Air - Moon Safari
My baby blue, is a new star in the sky Belle & Sebastian - Tigermilk
For every step, there is a local boy who wants to be a hero |
||||||||||||||||||||||||||||||