be[¡]kon

11.2.05
 
Ohhh.... mig langar í pizzu.


Eða einhverskonar brauð með bræddum osti ofaná. Eða bara eitthvað ógeðslega fitandi og ógeðslegt. Eins og Zinger Tower borgara á KFC.


Eða Tommaborgara.


Namm. Mig langar alltaf í mat. Sérstaklega á svona ekki matmálstímum. Ég hata það. Hér eru nokkrar uppskriftir:

Takið 2 samlokubrauðsneiðar og skerið af því skorpuna, rífið ost ofaná, piprið og leggið sneiðarnar saman, klemmið saman endana svo þeir festist. Takið 3 skálar. Setjið mjólk í eina, hveiti í aðra og egg í síðustu. Hitið olíu á pönnu. Dýfið brauðinu örstutt báðu megin ofaní mjólkina, síðan ofan í hveitið og svo í eggið. Steikið brauðið þar til það er stökkt og gyllt báðu megin. Borðið með sósu að eigin vild.

Takið eins margar brauðsneiðar og þið viljið (svo lengi sem talan er deilanleg með tvemur). Rífið ost ofan á brauðið. Kryddið með Timian, Oregano, Basil, Salt og Pipar. Leggið saman tvær og tvær sneiðar. penslið með olíu. setjið á plötu og bakið í ofni þar til stökkt báðu megin (ekki gleyma að snúa við)



Setjið 2 og 1/2dl. af hveiti, 1 teskeið af lyftidufti, 2 matskeiðar af sykri og 1-2 egg í skál og hrærið, setjið mjólk í eftir þörfum þar til allt er orðið mjög vökvakennt og ansi þunnt. Bræðið 25g af smjöri á pönnu og hellið svo útí mixtúruna. Takið ausu og hellið deigi út á pönnuna svo að það þeki hana. Þegar deigið er þornað, snúið kökunni við með spaða og steikið í nokkrar sekúntur. Haldið þessu áfram þar til deigið er búið. Borðið með sykri, sultu og rjóma, og svo er líka gott að setja venjulegt álegg ofan á, eins og ost, skínku, og það sem ykkur lystir. Síróp er líka fínt, en svoldið klístrað. Ávextir eru líka mjög kúl.



Vá hvað ég er miklu svengri en ég var áðan.

Best að fara að sofa. Vakna svo, fara í eina tíman sem ég þarf að fara í á morgun, koma svo heim, svengri en nokkurn tíman áður, steikja beikon, egg/eggjabrauð og kannski amerískar pönnukökur. Namm, namm.

Tónlist:

Slint - Spiderland
Primal Scream - XTRMNTR
Black Grape - It's Great When You're Straight, Yeah
Boredoms - Vision Creation Newsun
Pulp - This Is Hardcore
LCD Soundsystem - LCD Soundsystem