be[¡]kon

26.4.05
 
Jæja, ég er kominn til Hasbeen eyja. Þetta er bara miklu huggulegri en ég gerði ráð fyrir, það var rosa hátíð sem fagnaði mér þegar ég lenti (og auðvitað hinum sem komu með, m.a. Belle & Sebastian, hljómsveitin O-Zone, Aqua (þau höfðu verið á biðlista), James Spader o.fl.) þar var rosa partí, kampavín út um allt og rosa skemmtilegt partí og frábært. Ég leigi með A.J. úr Backstreet Boys í augnablikinu, en hann og Mark Owen úr Take That eru rosa góðir vinir, ég er viss um að við eigum eftir að vera svolítil þrenning. Reyndar sat ég við hliðina á Sören úr Aqua í flugvélinni og hann var bara rosa ágætur og gaman að tala við, bara eins og flestir. Annars fórum ég, A.J. og Mark í Laser Tag í gær, og enginn annar en Neve Campbell var að vinna í afgreiðslunni, ég tók mig til og bauð henni út... við ætlum út að borða á Little Ceasars svo kannski förum við í 3D bíó eftir á... Ég byrjaði á jarlinum í fyrradag síðan, rosa fínn staður og frábær matur... ég held að ég eigi eftir að hafa það gott hérna, miklu betri staður en ég átti von á...

Jæja, ég skrifa aftur seinna, en endilega hringið í mig og segið mér hvað er að gerast á Íslandi og svona.... bæbbsí.