be[¡]kon

26.12.05
 
Topp 10 Plötucover 2005:

10. Sleater-Kinney - The Woods

Þessi mynd fær mig eiginlega bara til þess að hugsa um myndbandið við Bachellorette eftir Björk. En halló, tré á sviði. halló. geðveikt.
9. Black Dice - Broken Ear Record

ókei, þetta er gella sem snýr rassinum að manni og er í thong sem er búinn til úr perlum með risastóra grímu úr pappír á andlitinu sínu og það er röndóttur skærlitur bakgrunnur. Þetta er bara of geðveikt.
8. Maxïmo Park - A Certain Trigger

Þessi skuggamynd er bara svo geðveik. Og rauðu stafirnir. Og þessi gaur hoppar svona í alvörunni. Ég hef séð það.
7. M.I.A. - Arular

Þetta kover á ótrúlega vel við tónlistina sem það geymir. Geðveikt litríkt og þessir vélbyssu stenslar (heitir þetta ekki skapalón á íslensku?) og svo er hún Maya líka bara svo sæt.
6. Animal Collective - Feels

geðveikt sætt.... eða hvað... strákurinn á vinstri hliðinni er með rauð augu og stelpan hinu megin grætur tjöru eða eitthvað.
5. Sunn O))) - Black One

Vá.
4. The Boy Least Likely To - The Best Party Ever

Það er svo gaman hjá þeim! Og þau eru svo sæt! Og guli gæjinn á hægri endanum? Hvað er þetta eiginlega?! Ég skil þetta ekki!
3. CocoRosie - Noah's Ark

ókei, þetta er einhyrningur að ríða hesti að ríða sebrahesti sem gubbar marglitu. Og svo er ókláraður regnbogi þarna. Ég veit ekki hvort ég eigi að hlæja eða gráta.
2. Test-Icicles - For Screening Purposes Only

Það blæðir úr sjónvarpinu. OMG óggissslaaa tööfffff.
1. Jackson & His Computer Band - Smash

ég vil vera alveg nákvæmlega eins og þessi. Mig langar líka til þess að borða þessa köku.