be[¡]kon

28.12.05
 
Topp 10 Tónleikar 2005:

10. Ghostigital - Klink og Bank, Reykjavík, Maí
Það var verið að opna listahátíðina, og ég var allt í einu kominn í þetta artí partí þar sem hellingur af artí liði var og Ghostigital voru að spila nýja dótið sitt í fyrsta skipti og það var fokking geeðvveikt.

9. Maxïmo Park - Vega, Kaupmannahöfn, Ágúst
Ótrúlega skemmtilegt live band. Það væri gaman að sjá þá aftur. Söngvarinn kann sko að stökkva.

8. The White Stripes - Laugardalshöll, Reykjavík, Nóvember
Hafði lengi langað til að bera þessa hljómsveit augum, og loksins fékkst tækifæri til. Þau brugðust ekki.

7. Death From Above 1979 - Roskilde Festival, Hróarskelda, Júlí
Ég var nýkominn af spítala, var á hækjum, samt dansaði ég.

6. Nortón/We Painted The Walls - Einimelur 14, Reykjavík, Ágúst
Þetta var svo gaman. Takk fyrir.

5. The Fiery Furnaces - Gaukur á stöng, Reykjavík, Október
Einhvernveginn tókst þeim að flytja öll lögin sín án þess að anda.

4. Joanna Newsom - Roskilde Festival, Hróarskelda, Júlí
Ég græt sjaldan á tónleikum.

3. Sonic Youth - Nasa, Reykjavík, Ágúst

Langbestu SY tónleikar sem ég hef farið á. Ótrúlega skemmtilegt úrval á lögum. Svo var ég líka alveg fremst.

2. The Futureheads - Roskilde Festival, Hróarskelda, Júlí

Ég stóð uppá fatlaðra palli og veifaði hækjunum mínum og hoppaði eins og ég veit ekki hvað.

1. Interpol - Roskilde Festival, Hróarskelda, Júlí

Ég gleymdi í smástund að ég væri slasaður. Gleymdi meiraðsegja hvar ég var, hver ég var og hvað ég var að gera.