be[¡]kon

22.6.06
 
En nú er það komið að okkar kynslóð að upplifa að sjá gömlu uppáhaldssveitirnar okkar. Við erum of ung fyrir Metallica og of gömul fyrir Korn. Við viljum Nirvana. En þeir eru ekki lengur til. Við fáum Radiohead í staðinn og það er fokking geðveikt.

Auk þessa nafna eru einhver bestu danstónlistarnöfn dagsins í dag að spila:

The Knife

Tiefschwarz

Black Strobe

Digitalism

Hot Chip

Tiga

Mylo

James Holden

Anthony Rother

Justice

Erol Alkan

!!!

Carl Craig o.fl

sem mér finnst líka geðveikt af því að við, börn fædd kringum 1985, eigum systkini sem fóru á rave. Við vorum of ung. Við vildum fara. Síðan hefur okkur dreymt um það.

Hvenær verður rave í reykjavík? Getum við ekki reddað þessu? Það hlýtur að styttast í þetta. Allir eru þyrstir í rave. Strobe ljós, glo-sticks og fokking teknó.

Getur það ekki gerst núna þegar sólin er komin til að vera? Í gær var lengsti dagur ársins. Ég hafði ekkert séð sólina almennilega síðan ég var í london fyrir rúmum mánuði síðan. Mér finnst ekki gaman að hanga inni allan daginn í tölvunni. Og fótboltinn er orðinn pínu einhæfur.

Lífið er eintómt og kalt

- kveðja, Billy Corgan

Annars var ég að gera nýtt mix sem er akkúrat 60 mínútur. Endilega dánlódið því hér:

Mix nr. 11

1. Delia Gonzales & Gavin Russom - Relevee (Carl Craig Remix)

2. JPLS - Twilite 7

3. Hugg & Pepp - Hund

4. Gui Boratto - Beluga

5. Audio Werner - Wash The Dishes

6. Booka Shade - In White Rooms (Electrochemie Remix)

7. Cirez D - Knockout (Sebastian Leger Remix)

8. Röyksopp - Beautiful Day Without You (Cass & Mangan Living Underdog Remix)

9. Huggotron - Dance

10. The Knife - We Share Our Mother's Health (Trentemøller Remix)

11. Tiga - Pleasure From The Bass

12. Palermo Disko Machine - Pump