Boris with Michio Kurihara - RainbowPedal, 2006

Boris heldur áfram að rannsaka hávaða rafmagnsgítarsins, en á þann hátt sem hann gerði á hægari lögunum á seinustu plötu, Pink, og til aðstoðar er einn fremsti psych gítarleikari japana, m.a. úr hljósmveitinni Ghost sem er alltaf að gera það betur og betur vestanhafs (eða austanhafs, ef talað er frá sjónarhorni japana). Þetta er samansafn af einhverjum svakalegustu gítarsólóum sem ég hef heyrt lengi, og brúa svolítið bilið milli rokk og djass gítarsólóa. Ef þið eruð mikið fyrir dáleiðandi hávaða og elska gítarhljóð þá skuluð þið endilega prufa þessa.
DOWNLOAD
skrifað af Pétri 10:17 e.h.