Blonde Redhead - 23
23 er fimmta eða sjötta plata Blonde Redhead. Nei heyrðu, sjöunda. Og núna fyrst breyta þau um hljóm aðeins. Bjartari og tærari hljómur en áður hefur heyrst hjá þeim og mikið af trommum. En ekki bara venjulegum trommum. Líka raf-takti. Heilmikill popp-hljómur í raun - shoegaze elementið er að hverfa. Jæja. Tékkið allavega á laginu SW, frábærir hljómagangar útsettir fyrir málmblásturssveit. Svo finnst mér þetta hulstur æðislegt. Ekki jafn frábært og Panda Bear hulstrið og ef þið eruð ekki búin að hlusta á hana ennþá þá vorkenni ég ykkur. Hún er þarna fyrir neðan. Bæ.
skrifað af Pétri 3:44 e.h.