be[¡]kon

15.5.07
 
Í dag gef ég ykkur þrjár nýjar plötur.

Ég ætla að byrja á einni plötu sem ég hef hlustað á rosa mikið síðastliðna tvo mánuði. Hún er eftir þýska techno-hausinn Kalabrese, sem komið hefur fyrir á ýmsum lögum síðustu ár, m.a. með Crowdpleaser & St. Plomb. EN þessi plata er ALLS EKKI teknó, heldur einhver æðislegur house-fusion og verð ég að segja að ég hafi ekkert líkt þessu heyrt áðan. Hér er rosalegt grúv í gangi frá byrjun til enda, kassagítar, málmblástur, einhver reggae MC og ein helvíti heit söngkona. Ég er ekki frá því að neinum einasta manni muni finnast þetta leiðinlegt. Ég meina maður getur ekki annað en brosið þegar maður heyrir sungið í byrjun þriðja lags: "I got PAIN.... in my ASSS!"

Kalabrese - Rumpelzirkus


Næst er það plata sem ég hef ekki hætt að spila síðustu viku. Hún er í ofsalega svipuðum kaliber og sú síðasta. Detroit teknó hausinn Matthew Dear AKA Audion er einnig með þvílíka house-fusion plötu með smá indie/alternative kryddi. Platan byrjar eins og maður myndi búast við frá gæjanum sem gerði Mouth To Mouth, harðar synth stungur og pínu pínu hi-hat/snerill, en svo kikkar inn þessi svakalega bassarödd, sem heltekur alla plötuna, undir lokin, er hann mættur með kassagítar og ég er ekki frá því að það sé einn meðlimur TV on the Radio þarna í laginu "Midnight Lovers". Klárlega ein af plötum ársins.

Matthew Dear - Asa Breed


Síðast en ekki síst er komið að hype-kóngum ársins en djöfull eiga þeir hype-ið skilið. Þetta er platan sem hefði átt að vera Human After All og býð ég þessa menn kærlega velkomna sem arftaka frönsku-raf krúnunnar. Ég þarf ekki að segja neitt um þessa plötu. Bara hlustið á hana og bráðnið.

Justice - †