be[¡]kon

29.10.07
 
Djöfull er mikið af fáránlega feitum tónleikum í kaupmannahöfn í nóvember! Djöfull væri ég til í að vera þarna allan næsta mánuð og lifa á hafragraut bara til að komast á þetta allt, í réttri röð:
Trentemoller, Pharoae Monch, Liars, Mika (Já, það er örugglega geðveikt á Mika tónleikum), Arcade Fire, Air, Deerhunter, Cocorosie, Crystal Castles, Beirut, Ash, The Fiery Furnaces, Stereo Total, Múm, Happy Mondays, The New Pornographers og Okkervil River!!! Þetta er handfylli, svo strax 1. des eru The Twilight Sad að spila. Sjálfur á ég miða á Arcade Fire (sem ég veit ekkert hvar er) en á ekki flugmiða. Ég get þó keypt flugmiða um mánaðamótin, en þá er spurningin, á ég að fara til DK í mánuð vinna á skítugum bar og fara á alla þessa tónleika, eða vera áfram á íslandi til að vinna mér inn fyrir jólagjöfunum... ? Eða fara bara á 2 eða 3 tónleika í köben og vinna mér inn fyrir nokkrum ódýrum jólagjöfum?

Og kemur einhver með?

Ég kannski finn Arcade Fire miðann áður en ég ákveð mig. Og borga kannski kreditreikninginn.

Þetta fokkar mér upp.