be[¡]kon |
|||||||||||||||||||||||||||||||
|
div class="%20ut&%20yfir&%20inn&%20undir"
align="center" color="#FFFFFF"
[/table]
Archives Apríl 2008 Mars 2008 Febrúar 2008 Janúar 2008 Desember 2007 Nóvember 2007 Október 2007 September 2007 Ágúst 2007 Júlí 2007 Júní 2007 Maí 2007 Apríl 2007 Mars 2007 Febrúar 2007 Janúar 2007 Desember 2006 Nóvember 2006 Október 2006 September 2006 Ágúst 2006 Júlí 2006 Júní 2006 Maí 2006 Apríl 2006 Mars 2006 Febrúar 2006 Janúar 2006 Desember 2005 Nóvember 2005 Október 2005 September 2005 Ágúst 2005 Júlí 2005 Júní 2005 Maí 2005 Apríl 2005 Mars 2005 Febrúar 2005 Janúar 2005 Desember 2004 Nóvember 2004 Október 2004 September 2004 Agúst 2004 Júlí 2004 Júní 2004 Maí 2004 Apríl 2004 Mars 2004 Febrúar 2004 Janúar 2004 Desember 2003 Nóvember 2003 Október 2003 September 2003 Ágúst 2003 Júlí 2003 Júní 2003 Maí 2003 |
13.10.07
úff.
ég er að spila The First Crusade með Jakobínarínu. Afhverju slepptu þeir ekki að gefa þetta út? Þessi tískubóla dó 2005 og ætti að vera alveg útdauð núna. Þeir eru búnir með NME túrinn, það ætti að vera feyki nóg. Söngvarinn í þessu bandi er eins og Mark. E. Smith á sterum, sem hljómar ömurlega. Ef þú ætlar að stæla Mark E Smith þarftu að vera fyllibytta. Ekki unglingsstrákur sem heldur hann geti samið sniðuga texta með því að nota orð eins og motherfucker og fleiri í þeim dúr. It goes on and on and on/Goes round and round... textabrot úr laginu Jesus. Æjæjæjæjæj. En að sjálfsögðu er ekkert verið að stæla Mark E Smith - ætli hann hafi vitað hver það væri þegar hann bytjaði... þetta er ekkert nema stæling af leiðindagæjanum Pete Doherty, sem er að sjálfsögðu að stæla Mark E Smith sjálfur. Svo er þetta helvítis Cure/Joy Division gítar reverb alls staðar, sem The Killers eru búnir að eyðileggja og ætti ekki að heyrast á plötu fyrr en eftir 10 ár. Annað textabrot: "Ég hugsa, ég hugsa, ég hugsa allt of mikið". Ég man hvað mér fannst trommuleikarinn góður á tónleikum fyrir ári eða svo. Nei tveim árum. Það er allllls ekki búið að ná þeirri orku inná diskinn, hann týnist algjörlega í þessum endalausu kaflaskiptum sem gera þessa plötu að algjörri ringulreið, auk þess sem masteringin er hræðileg, bassinn er alltof hár, gítarinn alltof lágur, og vókalinn er bara í ruglinu. Það er ekkert samhengi í neinu lagi, bara endalausar brellur sem gera plötuna virkilega óhlustanlega. Jæja, lag 6, Instrumental surf lag... þetta er ágætt. Hér eru flottar trommur og rockabilly gítarsánd, mjög flott - afhverju er ekki meira svona??? Næsta lag byrjar alveg eins og Boy's Don't Cry og helvítið byrjar að syngja aftur, og svo kemur sami klímax og í öllum hinum lögunum. Jeez. ég gæti aldrei notið þess að hlusta á þessa plötu heima. Hún er alltof kaótísk, og ég meina, ég hef mjög gaman af háværri tónlist, en þetta er bara svo illa smíðað og bara... leiðinlegt. Kaupið þessa plötu ef þið viljið gefa grín-gjöf eða setjið hana í póst hjá einhverjum sem þið hatið. Svona eins og sumir senda orma, þá er alveg eins hægt að senda Fyrstu krossferð Jakobínarínu. Vonandi fara þeir í aðra krossferð - ekki grófu þeir upp eitthvað sem enginn annar hafði grófið upp áður í þessarri fyrstu. EN - ein góð íslensk kom út í síðustu viku - Sometime platan. Kom mikið á óvart. |
||||||||||||||||||||||||||||||