be[¡]kon

31.10.07
 

Ég hlustaði á ( ) í gær. Fyrsta skipti sem ég set Sigur Rósar plötu í geislaspilaran nokkuð lengi. Ég var gjörsamlega blown away, gaman að upplifa það einhvernveginn upp á nýtt og svo setti ég strax í kjölfarið Ágætis byrjun í tækið. Ekki að virka. Ég hefði kannski átt að gera það annan dag en æj, maður var allur í klíju við að hlusta á þessi tjjúú og afturábak upptökur og eitthvað. Þessi plata er talin ein sú besta í heimi af mörgum tónlistargrúskurum og svona, en þessi plata er ekkert nema gimmikkar í gegn, allir kaflarnir sem manni fannst geðveikir fyrir hvað, 6-7 árum eru ekkert nema gimmikkar, hjartslættirnir í Svefn-G-Englum, hápunkturinn í starálfi og öll þessi hljóð sem maður fær klíju við að heyra núna. Aftur að ( ), þrátt fyrir að manni finnist þessi "vonlenska" frekar mikið hallæri, þá er tónlistin hér algerlega í fremsta flokki. Hvernig hún ferðast innra með manni og deyfir, hvernig andstæður plöturnar hafa ótrúlega ólík áhrif á mann. Svo er textaleysið svo öflugt, textar geta villt svo fyrir manni um textúr tónlistarinnar en mannsröddin er ákaflega fagurt hljóðfæri sem hefði ekki mátt sleppa á þessarri plötu. En, kannski fyrir utan bullmál Jónsa, er þessi plata alveg laus við gimmikka. Sigur-Rós í hnotskurn og örugglega sú plata sem þeir gefa sig mest í, tilfinningalega.


Þegar ég hafði lokið að hugsa svona ótrúlega mikið út í sigur rós ýtti ég á play á iTunes. Þá hafði ég nýhalað fyrstu plötu L.A. grúppunnar No Age, Weirdo Rippers gefin út hjá Fat Cat (líkt og Sigur-Rós) fyrr á þessu ári. Það var ekkert smá hressandi. Þessir tveir gæjar spila alveg fáránlega lo-fi rocknroll. Við erum að tala um gömul 4-track upptökutæki og miskunnarleysi þegar kemur að pedölum. Ég held þetta sé svolítið hate it or love it dæmi og ég hallast að seinni dálkinum eins og er en umfjallanir fara fyrir ofan garð og neðan.


Akkúrat núna er ég að hlusta á I Believe in You, Your Magic Is Real með YACHT og spyr afhverju í andskotanum þetta hefur farið framhjá mér. Þetta er eins og Animal Collective að spila hip-hop og elektró. Rugl.