be[¡]kon |
|||||||||||||||||||||||||||||||
|
div class="%20ut&%20yfir&%20inn&%20undir"
align="center" color="#FFFFFF"
[/table]
Archives Apríl 2008 Mars 2008 Febrúar 2008 Janúar 2008 Desember 2007 Nóvember 2007 Október 2007 September 2007 Ágúst 2007 Júlí 2007 Júní 2007 Maí 2007 Apríl 2007 Mars 2007 Febrúar 2007 Janúar 2007 Desember 2006 Nóvember 2006 Október 2006 September 2006 Ágúst 2006 Júlí 2006 Júní 2006 Maí 2006 Apríl 2006 Mars 2006 Febrúar 2006 Janúar 2006 Desember 2005 Nóvember 2005 Október 2005 September 2005 Ágúst 2005 Júlí 2005 Júní 2005 Maí 2005 Apríl 2005 Mars 2005 Febrúar 2005 Janúar 2005 Desember 2004 Nóvember 2004 Október 2004 September 2004 Agúst 2004 Júlí 2004 Júní 2004 Maí 2004 Apríl 2004 Mars 2004 Febrúar 2004 Janúar 2004 Desember 2003 Nóvember 2003 Október 2003 September 2003 Ágúst 2003 Júlí 2003 Júní 2003 Maí 2003 |
19.10.07
Stuttu á eftir að ég skrifaði síðast byrjaði Smoosh að spila hérna uppi, ég var reyndar fastur bak við afgreiðsluborðið og gat þ.a.l ekki séð þá tónleika, en þetta hljómaði frekar basic, fyrir utan virkilega þéttann trommuleik elstu stúlkunnar. Á eftir þeim spilaði Elíza, fyrrum meðlimur Bellatrix en hún var frekar leiðinleg. Skil ekki hvað hún er að gera tónlist ennþá.
Tuttugu mínútum eftir að hún klárar labba inn "töffararnir" í The Duke Spirit og spila sitt enska hype-rokk af fullum krafti og heilla alveg einhverja, en ekki mig. Þeir voru samt mjög kurteisir og rosalega þakklátir... Þegar þeir voru að klára slær út rafmagnið og Einar Örn fer í panik að leita af rafmagnstöflunni því M.E.G.A. og Kali voru í fríi og enginn vissi hvar hún var. Jan Mayen spila fyrir 20 manns síðan og loksins gat ég lokað og fengið mér bjór. Eftir bjórinn komu margir aðrir, sumir þeirra voru á Kjarvalsstöðum, þar sem Icelandair var að halda eitthvað exclusive yfir-pródúserað partí. Safninu var breytt í flugsstöð og allur pinnamaturinn var í flugvélamatarboxi. Þema. Eftir rútuferðina niðuríbæ (!) og viðkomu á ölstofunni fór ég á Retro Stefson á NASA. Ég veit ekki afhverju mér fannst það, kannski hef ég séð þau of oft, en mér fannst þau hálf kraftlaus, og ekki alveg að ná þessum stóra sal til sín, sem var trrroðfullur. Þau tóku þetta sama sett og venjulega plús 2 eða 3 lög. Raggi úr Bertel! hefur bæst þarna við og spilar á Sax í tveim lögum, annað eitthvað svaka prog-lag sem var greinilega illa æft og náði aldrei að hitta í mark. Þrátt fyrir að tónlistin sé ótrúlega skemmtileg, er eins og þau hafi ekkert nennt að leggja of mikið í að æfa sig, kannski orðin góð með sig..? Ég vona þó að þau standi sig næst, hef síðan í fyrra haft dálæti af bandinu sem var, imo, einn hápunktanna á airwaves í fyrra. Ég rölti síðan yfir í Hafnarhúsið og fékk mér annann bjór, bölvaði Lay Low og beið svo eftir Grizzly Bear. Þeir stigu á svið á akkúrat réttum tíma og hófu prógramið á held ég nýju lagi, kannski af þessum nýja EP, hef ekki heyrt hann ennþá, mjög sjarmerandi gæjar og lifðu sig vel inní fyrstu tvö lög, en urðu svo þreyttir, og ég líka af krádinu, sem masaði og talaði ALLAN tímann á meðan tónleikum stóð, þeir reyndu að spila af krafti, en virtust svo gefast upp... "We're gonna play two slow songs now, then we'll play Knife, OK?" Mér fannst frekar ömurlegt að heyra þetta. Þeir höfðu enga þolinmæði fyrir þessu krádi, en ættu kannski að vera vanir því, búnir að túra nærri stanslaust í heilt ár og þar af heilmargar hátíðir! Þetta voru mjög mikil vonbrigði og ég væri alveg til í að sjá þá aftur í öðrum, minni sal þar sem fólkið er þarna til að meta tónlistina, en ekki því það er í tísku að vera á tónleikastaðnum, eins og virðist vera staðan með airwaves í dag. |
||||||||||||||||||||||||||||||