be[¡]kon |
|||||||||||||||||||||||||||||||
|
div class="%20ut&%20yfir&%20inn&%20undir"
align="center" color="#FFFFFF"
[/table]
Archives Apríl 2008 Mars 2008 Febrúar 2008 Janúar 2008 Desember 2007 Nóvember 2007 Október 2007 September 2007 Ágúst 2007 Júlí 2007 Júní 2007 Maí 2007 Apríl 2007 Mars 2007 Febrúar 2007 Janúar 2007 Desember 2006 Nóvember 2006 Október 2006 September 2006 Ágúst 2006 Júlí 2006 Júní 2006 Maí 2006 Apríl 2006 Mars 2006 Febrúar 2006 Janúar 2006 Desember 2005 Nóvember 2005 Október 2005 September 2005 Ágúst 2005 Júlí 2005 Júní 2005 Maí 2005 Apríl 2005 Mars 2005 Febrúar 2005 Janúar 2005 Desember 2004 Nóvember 2004 Október 2004 September 2004 Agúst 2004 Júlí 2004 Júní 2004 Maí 2004 Apríl 2004 Mars 2004 Febrúar 2004 Janúar 2004 Desember 2003 Nóvember 2003 Október 2003 September 2003 Ágúst 2003 Júlí 2003 Júní 2003 Maí 2003 |
14.10.07
Undanfarna mánuði hef ég verið að reyna að afla mér þekkingu á alternative rokk-senu 10. áratugarins án mikillar lukku. Ég fór þó loksins að hlusta á Stereolab, Sebadoh og Eels, reyndi að hlusta á R.E.M. (sem gera alls ekki neitt fyrir mig) og varð fyrir vonbrigðum með shoegaze "meistaraverkinu" Souvlaki m. Souldive. Í fyrradag náði ég þó í plötuna "Dusk at Cubist Castle" með Olivia Tremor Control sem kom út 1996. Þetta er einskonar psych-dream-pop plata, algjörlega rökrétt framhald af shoegaze senunni og Alt. Rokki Becks o.fl. bandaríkjamanna. Algjör gullmoli sem er of lítið fjallað um í tengslum við bandarísku senuna, þar sem risar eins og Beck, Pumpkins, Flaming Lips og helvítis R.E.M. sitja efst uppi. En þegar ég las meira um OTC uppgötvaði ég líka Elephant 6 Recording Company, upptökufyrirtæki úr Georgia stjórnað af Jeff Mangum og æskufélögum hans þar sem störfuðu, ásamt öðrum, sveitir eins og Apples in Stereo, Elf Power og að sjálfsögðu Neutral-Milk Hotel. Svo á seinni tímum hófu Ladybug Transistor og of Montreal sína ferli þarna (þess má geta að allir úr Elephant 6 kóllektívnum taka þátt í hrópunum í Nickee Coco á The Gay Parade). Mér þótti merkilegt að sjá allar þessar sveitir þarna saman settar, allt saman með þeim fyrstu til að búa til Indie Pop í þeirri mynd sem við þekkjum það í dag. Mér þykir ótrúlega sérstakt að ég sé að lesa um margar sveitana þarna núna í fyrsta skipti, þar sem þetta fólk hefur starfað frá árinu 1991, líklega á sama tíma og Beck og Flaming Lips, en á undan Deerhoof, Spoon, Arcade Fire og Montreal senunni, Animal Collective o.fl. sveita sem eiga Elephant 6 mikið að þakka, mjög kreatívt tímabil sem hefur algjörlega gleymst og þarf algjörlega að grafa upp betur. Neutral-Milk Hotel og of Montreal þekkja flestir, en Elf Power, Essex Green og sérstaklega Olivia Tremor Control eru sveitir sem eiga upp á pallborðið núna.
Annað sem ég vill nefna: 1986. Það var að koma safndiskur með bresku indie-poppi frá 1986 inní búð - einskonar blanda af The Smiths og Shoegaze tónlist... endalausar sveitir sem ég þekkti ekki áður sem eiga athygli skilið, ásamt Primal Scream, Jesus & Mary Chain og Television Personalities, endilega tékkið á! |
||||||||||||||||||||||||||||||