be[¡]kon

21.12.07
 
10 bestu máltíðir ársins 2007

1. Dumplings á dumplings staðnum í Xian.

djöfulsins snilld var það maður.

2. Samloka 15. á 10 dropum.
Svooo mikið gúmmelaði. Allt þetta grænmeti og beikonið og helvítis brie-ið. Mmm.. og svo þessi brjálæðislega sinnepssósa. Ég get ekki hugsað um þetta án þess að slefa beinlínis. Ótrúlega vel útilátið og bara. Fullkomið.

3. Búlluborgari með frönskum og bernaise.

ég smakkaði aldrei bernaiseið fyrr en í ár og þetta er einhver besta bernaise sem til er, smellpassar með þessum ódýru macains frönskum

4. Steikarsamloka Grillhúsins.

Berglind kynnti mér fyrir þessarri einskæru samloku í vor og hef ég borðað hana oft síðan. Allt of góð sinnepssósa.

5. Zinger Tower Máltíð á KFC.
ég veit ekki hversu oft ég er búinn að fá mér þetta sjitt í ár.

6. Maturinn á Ólíver í sumar.
Fór með götuleikhúsinu á ólíver í lok sumars þar sem við fengum einhverskonar semi-hlaðborðs máltíð... Það var allt þarna. Man ekki alveg eftir forréttinum en næst kom bleikja og eitthvað pasta og svo önd og naut og meira gúmmelaði og síðan í lokin fengum við svona "death by chocolate" gæja. Djöfull var það mikil snilld.

7. Tvöfaldur með beikon á vitabar, franskar með.
Og að sjálfsögðu bjór líka.

8. Pizza á hróa m. Pepperoni, Piparost og Ananas.
Það er einhver snilld við þessar hróa pizzur, þær bara batna og batna. Svo er líka bara svo gott að éta, fullur, um miðja nótt, búinn að bíða í klukkutíma og á nærbuxunum. Skylda að hafa hvítlauksolíu og kók með. Gott er svo að hita upp tvær sneiðar í morgunmat.

9. Síðasti morgunmaturinn í íbúðinni í Beijing.
Ég fékk náttúrulega dumplings og edik (algjör snilld, þau voru búin að vera vakandi mjög lengi að búa þetta sjitt til handa mér, sturlun) en svo var komið með handa mér einhverskonar eggjapönnukaka með vorlauk og einhverju meira gúmmelaði sem var eiginlega ótrúlegt á bragðið. Ég vildi að ég vissi meira um þetta.

10. Maturinn í sendiráðinu.
Ótrúlega var gott að borða þennan mat eftir pínlegar máltíðir í 4 daga. Algjört rugl. Djöfull var líka gaman að detta í það!