be[¡]kon

14.12.07
 
Ég er að sturlast úr leiðindum hérna í lengdum opnunartíma á laugaveginum, svo, ég ætla að byrja á þessu árslista veseni.

Bestu myndir sem ég sá á þessu ári en komu samt út nýlega

Ég var ekkert rosalega duglegur að fara í bíó, en ég sá nú eitthvað, bæði nýtt og gamalt. Hér eru 10 bestu:

Superbad
Stranger than Fiction
Children of Men
Meet the Robinsons
Harry Potter & The Order of the Phoenix

nei ókei þær verða bara 5. það er alveg nóg.

annars horfði ég á rosa mikið Arrested Development og Heroes og Næturvaktina. Það er alveg jafnlangt og 20 bíómyndir eða eitthvað.

annars verð ég eitthvað að flippa á sirkus með Heimi og Sigga í kvöld ef þið viljið líta við. Svo er ég hérna inní smekkleysu núna. Að gera nothing. Ef þið viljið líta við.