be[¡]kon

17.12.07
 
Jæja, ég er að spá í að gera einn svona lista, alveg óundirbúið og ónúmerað:

Skemmtilegustu plötuhulstur/pakkningar 2007

of Montreal - Hissing Fauna, Are You the Destroyer?

vínill:


Ótrúlega skemmtilegt þetta hringja konsept, mjög nordic eitthvað, sérstaklega gaman í CD útgáfunni þegar 5 hringurinn fylgir með á sér blaði. Sniðug hugmynd.

Blonde Redhead - 23


Ekkert sérstakt við pakkninguna, en þessi mynd er bara æðisleg

Panda Bear - Person Pitch


7 æðislega fallegar myndir inní sem fylgja líklega hverju lagi plötunnar, sem eru einmitt 7. Myndin framan á fær mig svo alltaf til að hlæja,

Jens Lekman - Night Falls Over Kortedala


Mig langar í klippingu hjá þessu skýi. Djöfull er hann líka myndarlegur.

Menomena - Friend and Foe


Ok þessi mynd er ógeðsleg, en... Þetta er ótrúlega skemmtilegt. Það eru göt á henni, og á disknum eru númer í kös, og nöfn á lögunum í engri sérstakri röð. Maður þarf nefnilega að snúa disknum til til að finna út lagaröðina, í gegnum götin á myndinni. Ótrúlega skemmtilegt segi ég aftur.

Svo er lítið annað sem vakti sérstaklega athygli mína, Justice fær props fyrir að vera töff, og guli þeminn á Battles plötunni er flottur, en ekki nógu flottur. Svo skilst mér að Radiohead hafi dottið einhver snilld í hug, kemur í ljós á gamlársdag. Böndin í ár virðast hafa spáð meira í tónlistinni sjálfri í ár, frekar en pakkningunum.

NEMA ÍSLENDINGARNIR:

Amiina - Kurr


Við erum að tala um ótrúlega flotta mynd og svo einhverskonar barnabóka þykkt og allt mjög skrýtið.

Múm - Go, Go Smear the Poison Ivy

Það er hægt að skipta um myndir sem eru allar ótrúlega fallegar og eftir Ingibjörgu Birgisdóttur sem er í miklu uppáhaldi hjá mér svo er hægt að BORÐA HULSTRIÐ AAAAAA

Benni Hemm Hemm - Ein í leyni

ææ ég fann ekki stæri mynd en guð hvað ég hef gaman af þessu! Origami!

og síðast en ekki síst...

Hjaltalín - Sleepdrunk Seasons


svo skilst mér að vínillinn verði ennþá flottari... úúú