be[¡]kon

18.1.08
 
3

Þrjár nýjar plötur sem eru að gera allt brjálað hjá beikoninu:

Destroyer - Trouble In Dreams


Bejar er kominn með nýja sólóplötu sem gefur Destroyer's Rubies (sem ég setti í 6. sæti 2006) ekkert eftir. Hann er sannkallaður snillingur í óhefðbundum popplögum og sniðugum krókum. Ekki láta þessa fara framhjá ykkur þegar hún kemur út í mars n.k.

Destroyer - Blue Flower, Blue Flame

Atlas Sound - Let The Blind Lead Those Who Can See But Cannot Feel


Annað sólóverkefni, en nú frá sérvitringnum Bradford Cox úr Deerhunter. Honum tekst á einhvern hátt að gera shoegaze tónlist með engum gíturum. Undurfagrar melódíur og vélrænn hávaði til skiptis. Kemur í febrúar.

Atlas Sound - Quarantined

Goldfrapp - The Seventh Tree


Goldfrapp hafa hér afneitað Electro-poppi þeirra sem var algjörlega við völd á seinustu tveim plötum. Nú hafa þau skapað plötu með frábæru svona 60s poppi. Þetta minnir óneitanlega á Nancy Sinatra og Gainsbourg og það gamla lið. Allison gefur Jane Birkin og Nancy líka ekkert eftir. Kemur einnig í febrúar.

Goldfrapp - Happiness