be[¡]kon

15.1.08
 
Það er frábær grein um "No Wave" senuna á pitchfork í dag, mæli með að allir lesi þetta og reyni svo að nálgast (ef þið hafið ekki gert það nú þegar) annaðhvort "No New York" safnplötuna eða bara "New York Noise" seríuna frá Soul Jazz - ég held það sé komið upp í vol. 3.

Annars hef ég hlustað á lítið annað en Cave, Dylan og Eno síðustu daga. Ætli ég fari svo ekki í Fripp, Gilmour og.. u.. Harcourt næst?
Nýja Cat Power er við völd hér niðrí vinnu. En það er ein plata, ný, sem mér finnst alveg hreint æðisleg.

Envelopes - Here Comes The Wind

Þessi sveit er bæði frönsk og sænsk og spilar... Uuu... Indie rock? Eitthvað í þá áttina. En ég er ekki enn búinn að átta mig á því afhverju mér finnst þetta svona æðislegt. Þetta minnir á köflum á Pixies og smá á eldra Eno dótið en samt er þetta alveg sér á báti. Ekki alveg það sem maður myndi búast við frá þessum evrópulöndum. Ég veit ekki hvaðan maður ætti að búast við þessu í rauninni. En það fer ekki milli mála að þetta skuli vera algjör dúndur-sveit, sem verður örugglega eitthvað hæpuð þegar platan kemur út. En þið lásuð það hér fyrst! hei!

Envelopes - Freejazz