be[¡]kon

20.1.08
 
Kolaportið

Mig langar bara að lýsa yfir ánægju minni á vínyl-búllunni í Kolaportinu. Það er hægt að finna alveg ótrúlegustu plötur þarna á vínil, flest allar í original mynd og alveg ótrúlega vel farnar. Plöturnar eru á bilinu 300-2500 kr. Svo er auðvitað alltaf hægt að prútta. Í dag sá ég meðal annars allar 80s Depeche Mode plöturnar auk næstum allra 12" frá því tímabili, það finnst mér nokkuð gott dæmi um gæði búllunnar.

Í síðustu tvö skipti hef ég keypt, f. 8000 kr eftirfarandi:
Talking Heads - Fear of Music, Speaking In Tongues,
Brian Eno - Taking Tiger Mountain (By Strategy),
Nick Cave - The Firstborn Is Dead,
Einstürzende Neubauten - Zeichnungen Des Patienten O.T.,
Michael Jackson - Off The Wall, Thriller
og Fleetwood Mac - Rumours.

Ég skora á alla sem vilja eiga góðar plötur á góðum miðli að drífa sig þarna og fjárfesta t.d. í Smiths safninu eða nokkrum reggae plötum.