be[¡]kon

23.1.08
 
Post Rock

This Will Destroy You


Hér er post-rock band sem fer eftir öllum settum reglum. Fyrir þá sem elska post-rock þá finnst ykkur þetta alveg örugglega æðislegt. Öðrum finnst þetta kannski óspennandi. Mér finnst þetta allt í lagi. Mér finnst gaman að bandið skuli vera óhrætt við að nota elektrónísk hljóð. Svona lítið glitchy hljóð sem minna á allt sem warp gáfu út ca. 2000-2001. Það er enginn söngur á þessarri plötu, heldur bara alveg geysilöng lög og langar uppbyggingar. Hljóðheimurinn sem hér er skapaður er ægilega vel heppnaður - mjög fallega upptekinn gítar og trommurnar eru kraftmiklar og flottar. Þetta er svo sem ekkert nýtt þannig séð en post-rokkið breytist víst lítið, allaveg skv. þessum gæja.

This Will Destroy You - A Three Legged Workhorse