be[¡]kon |
|||||||||||||||||||||||||||||||
|
div class="%20ut&%20yfir&%20inn&%20undir"
align="center" color="#FFFFFF"
[/table]
Archives Apríl 2008 Mars 2008 Febrúar 2008 Janúar 2008 Desember 2007 Nóvember 2007 Október 2007 September 2007 Ágúst 2007 Júlí 2007 Júní 2007 Maí 2007 Apríl 2007 Mars 2007 Febrúar 2007 Janúar 2007 Desember 2006 Nóvember 2006 Október 2006 September 2006 Ágúst 2006 Júlí 2006 Júní 2006 Maí 2006 Apríl 2006 Mars 2006 Febrúar 2006 Janúar 2006 Desember 2005 Nóvember 2005 Október 2005 September 2005 Ágúst 2005 Júlí 2005 Júní 2005 Maí 2005 Apríl 2005 Mars 2005 Febrúar 2005 Janúar 2005 Desember 2004 Nóvember 2004 Október 2004 September 2004 Agúst 2004 Júlí 2004 Júní 2004 Maí 2004 Apríl 2004 Mars 2004 Febrúar 2004 Janúar 2004 Desember 2003 Nóvember 2003 Október 2003 September 2003 Ágúst 2003 Júlí 2003 Júní 2003 Maí 2003 |
13.1.08
Tvær á sunnudegi
Í dag ætla ég að skrifa um tvær plötur sem eiga það sameiginlegt að vera ekki nema um hálftími í lengd. Frekar stutt það. Ports of Call - Like Thieves (það virðist hvergi vera til mynd af hulstri...) Ég las um þessa sveit nú um daginn á einhverju blogginu. Þetta leit út eins og hin áhugaverðasta sveit og ákvað ég því að kíkja aðeins á plötuna þeirra, Like Thieves, sem kemur út núna á dögunum. Þetta er shoegaze band. Eða nu-gaze eða hvað sem þið viljið kalla þetta. Frábær shoegaze tónlist, í alla staði. En. Þetta er alls ekkert meira en það. Þetta kemur á alveg hræðilegum tíma. Undanfarið höfum verið að fá svo mikið af frábærum hljómsveitum sem taka shoegaze soundið svona aðeins lengra en síðasta band. Ports of Call gera bara nákvæmlega það sama og var gert 1989-91. Bara alveg það sama og J&MC (meira að segja eitt lagið heitir "Honey"), MBV, Slowdive og allt það crew. Þetta verður bara leiðinlegt. Fyrstu tvö lögin finnst mér nokkuð góð og lokalagið er frábært, en svo verður þetta bara að sama grautnum. Það er ekkert sem áskorar mann. Ég held þó að það þurfi alls ekki að hætta þessu shoegaze-revival, enda frábær tónlistarstefna, en það þýðir ekkert að gera nákvæmlega það sem var gert þegar shoegaze tímabilið var. Ég gæti alveg eins sett Loveless í - og fílað það ógeðslega vel. Þetta fer bara í taugarnar á mér. Dæmið sjálf: Ports of Call - Here We Are Annað er samt að segja um hina plötuna í dag... Blood on the Wall - Liferz ![]() Þetta er ill shit. Illa hrátt rock n roll. Ég man nú lítið eftir síðustu plötu þeirra, ég man mér fannst hún feit en ég hlustaði ekki oft á hana. Nú ætla ég að hlusta á hana aftur, því sándið á þessarri plötu er að fara alveg með mig. Gítararnir springa beinlínis framan í þig. Þetta eru allt stutt lög og hnitmiðuð. Þetta eru allt brjáluð gítarriff, öll illa fuzzuð og distortuð. Ógeðslega töff sjitt, eða það finnst mér allavega. Þetta hentar líka þeirri ákvörðun hjá mér að byrja aðeins að kíkja á Dinosaur jr. plötur. Ég mæli með að allir tékki á You're Living All Over Me og Bug ef þið eruð að fíla þetta Blood on the Wall dæmi, og hafið ekki hlustað á Dino jr. áður. Blood on the Wall - Rize |
||||||||||||||||||||||||||||||