be[¡]kon

19.2.08
 
Eitt fyrir Halla, annað fyrir Alla (Malla)

Boris - Smile

Boris snýr enn aftur og nú með mun pönkaðri plötu heldur en sú bleika. Ótrúlega hávær, súr, progguð og eiginlega allt sem Halli bað um í komenntakerfinu hérna 2 færslum neðar. Ég get lítið annað sagt, hlustið bara á þetta:
Boris - BUZZ-IN

Rusalnaia - Rusalnaia

Tvær vinkonur frá fíladelfíu (borginni en ekki söfnuðinum) syngja og spila hér saman ofsalega dáleiðandi en draugalega þjóðlaga tónlist, með dálítið enskum/írskum blæ. Það virðist sem tónlist nútímans hafi ekkert snert þær í sköpun sinni, en í leiðinni get ég ekki ímyndað mér að þetta gæti verið til í dag. Með betri þjóðlagaplötum sem ég hef heyrt í langan tíma. Hún er laus við alla tilgerð og krúttleika - algjörlega einlægt verk sem ég hlakka til að hlusta á meira næstu mánuðina.
Rusalnaia - Winter