be[¡]kon

1.2.08
 
Veikindaplötur.

Ida - Lover's Prayers

Þessi krúttlega litla plata byrjar á krúttlegu ukulele-spili, sem setur vel tóninn fyrir restinni af plötunni. Þetta er mjög hugljúf og létt plata. Strákur og stelpa syngja saman, oftast einraddað, og má heyra kassagítar og oggulítinn trommuleik í öllum lögum. Einnig er að finna strengi, píanó, harmóníum og fleiri svona krúttleg hljóðfæri. Þetta er ofsalega notaleg tónlist svona þar sem ég ligg veikur heima núna, þegar maður höndlar ekki of mikið áreiti. Þannig að í raun er þetta frekar ómerkileg plata. Ég gæti núna verið að hlusta á nýju Autechre plötuna en gat það bara alls ekki, of mikil hátíðnihljóð fyrir mitt ástand akkúrat núna. En þessi Ida gerir í raun ekkert fyrir mig þar sem það er margt annað spennandi í boði. Ég á ekkert eftir að hlusta á þetta aftur, nema á svona dögum þegar ég nenni ekki að hugsa neitt.
Ida - The Killers 1964


The Helio Sequence - Keep Your Eyes Ahead

Hér er annað svona frekar ómerkilegt band, í raun enn ómerkilegra. Þetta hljómar svolítið eins og Coldplay að spila Joy Division lög. Sem ég vona að muni aldrei gerast. Væmið lið að þykjast vera töff, en fatta ekki að eina leiðin til að vera töff í alvörunni er að vera drungalegur, svona eins og Ian Curtis var - hann var svo töff að hann hengdi sig því hann sá einhvern leiðinlegan sjónvarpsþátt. Þetta Helio Sequence band er örugglega eitt það versta sem Sup-Pop hafa komið út, sem hefur lengi talist með mínum uppáhalds útgáfum. Þau gáfu út Nirvana á sínum tíma, Wolf Parade og Wolf Eyes og svo kemur þetta? Hvað þýðir þetta? Kúkuðu NME í heilan á þeim? Þetta er alveg sami kaliber og öll þessi NME hype bönd. Alveg ótrúlega ómerkilegt og á eftir að gleymast eftir 2 daga. Þetta er svona mússík sem komst ekki inní O.C. og endaði í One Tree Hill soundtrackinu í staðinn.
The Helio Sequence -Keep Your Eyes Ahead


Annars rakst ég á þetta í gær og svei mér þá ætla ég að taka þátt. Ég skora líka á alla tónlistarmenn sem skoða þessa síðu og í raun alla hina til að taka þátt! Þetta er skemmtilegt verkefni og góð æfing. Og eins og kemur fram í leiðbeiningunum er þetta bara plata, en ekki platan.

Ætli ég hendi svo ekki afrekstrinum hingað upp svo!

Góða skemmtun og gangi ykkur vel!