be[¡]kon

8.3.08
 
Mest niðurdrepandi tónlist allra tíma

Hæ öllsömul. Ég hef verið alltof slappur upp á síðkastið við að skrifa litla pistla hérna en ég hef verið einum of iðinn við að þykjast vera rokkstjarna og superstar DJ.
Áhugasamir um rokkstjörnustörf mín geta mætt í kvöld á lokatónleika HELVÍTIS túrsins en þar ásamt hljómsveit minni "Skelkur í bringu" munu, eins og að venju, Swords of Chaos og Fist Fokkers spila. Baunirnar munu að sjálfsögðu spila og til liðs við okkur hefur gengið Fjöllistahópurinn Kumpánar. SWC beiluðu.
Vegna rokksins hef ég spilað mikið rokk í i-podinum undanfarið en þar ber helst að nefna tvær plötur:

Be Your Own Pet - Get Awkward

Þessir fjörugu kids eru með glænýja plötu sem gefur síðustu ekkert eftir (sem var á topp 5 yfir uppáhaldsplötur beikonsins árið 2006) Jemima Pearl, söngkona sveitarinnar og ein heitasta pía sem ég veit um er farin að syngja meira eftir melódíu en textarnir eru þó áfram jafn ótrúlega kjánalegir og skemmtilegir og fyrr. Ég veit nú ekki hvort bandið hafi eitthvað bætt sig spilanlega þó, en þeir hafa örugglega verið ansi duglegir við að mæta í partí, drekka sig fulla og vera með læti. Ekki beint tími til að æfa sig en það er líka allt í lagi.
Be Your Own Pet - Zombie Graveyard Party

The Goslings - Occassion

Hér er hinsvegar mjög drungaleg og þung tónlist á ferð. Mikill metal-grunnur sem er þó algjörlega falinn með þvíílíkum hávaða. Sjaldan hef ég heyrt jafn út-í-gegn-háværa plötu. Algjör sonic árás. Upptökur eru líka svo yndislega hráar. Ég myndi ekki einu sinni kalla þetta lo-fi. Frekar bara... no-fi. Ég held það orð lýsi þessarri plötu ágætlega. Semsagt. Þessi plata gæti drepið þig.
The Goslings - Parsley Halo

Have a Nice Life - Deathconciousness

Þessa á ég reyndar eftir að hlusta á. en er svo rosalega spenntur fyrir að ég verð að hafa hana með (ég er nefnilega svo mikið að hlusta á þessa Vampire Weekend plötu sem FÆST NÚNA Í SMEKKLEYSUPLÖTUBÚÐ OG HVERGI ANNARSTAÐAR Á ÍSLANDI)
Platan er í fyrsta sæti yfir 2008 plötur hjá Rate Your Music (æðisleg síða - það er linkur á mína hér til vinstri).
Plötunni er lýst þá sem einhverskonar blanda af Shoegaze, Drone og Post-Punk og gætir heilmikilla áhrifa frá böndum á borð við Joy Division, The Cure, My Bloody Valentine og Kid A m. Radiohead (mjög niðurdrepandi allt saman).
Fréttatilkynning frá bandinu (sem gefur jafnframt plötuna út sjálft) lýsir plötunni sem "The most depressing album of all time".

Vá.

Platan er á tveim diskum, einhverskonar undirplötum: The Plow that Broke the Plains og The Future og hefur að geyma allskonar frábær laganöfn: A Quick One Before the Eternal Worm Devours Connecticutt, The Big Gloom, There Is No Food, I Don't Love og Holy Fucking Shit: 40,000. Með fylgir lagið með uppáhalds nafninu mínu.
Have a Nice Life - Waiting for Black Metal Records to Come in the Mail

Nú ætla ég að hlusta á plötuna. Gæti verið að ég hengi mig eftir að hlusta á þessa plötu ef hún er svona niðurdrepandi, svo bara. Takk fyrir allt.

P.S. Ég er búinn að laga linkana í Topp 5 hérna til vinstri og nú getiði líka fengið lög með Dirtbombs og Quinn Walker!


UPDATE: Ég er enn á lífi. Platan var alls ekki nógu kúl. Alls enginn hávaði. Og þetta hljómar dálítið eins og The Killers að spila Mogwai. Vesen. Heppilegt samt að lagið sem fylgir færslunni er mest kúl lagið á plötunni.