be[¡]kon

21.4.08
 
Glass Candy - B/E/A/T/B/O/X

Jæja. Þessi plata kom út í fyrra haust og hef ég haldið mikið upp á hana síðan þá. Ekta retro-italó-diskó, gefið út á sama labeli og Chromatics platan sem hafnaði í 7. sæti í ársuppgjörinu mínu í fyrra - frekar svipaður fílíngur, bara meira up-beat, og sami pródúser. En ég set þetta bara hér til að bera saman við:

Madonna - Hard Candy

Ókei þessi stelling framan á koverinu er að sjálfsögðu ótrúlega ósmekkleg, en berið nú aðeins saman litina og lúkkið á báðum.
Og svo er óhjákvæmilegt að bera saman titil plötunnar og nafn fyrrnefndar hljómsveitar. En það er ekki það eina sem er samberanlegt (er það orð?). Madonna hefur bara rétt Pharell (pródúser Hard Candy) þessa Glass Candy plötu og sagt heyrðu ég vil að þetta sé svona. Hann bara ókei og fær snyrtilega lánað hitt og þetta - Old school trommusándið sett í R'n'b stíl, hallærisleg klukkuspil og casio-bjöllutónar, midi lúðrar og í raun flest allt sem Johnny Jewel (pródúser Glass Candy) hefur verið að gera undir jörðinni í dágóðan tíma. Já þetta er farið að verða flókið allt þetta Glerharða sælgæti svo við skulum nú bara bera saman þennan hit singúl Madonnu/Justin/Timbaland og Sælgætishöll Johnny Jewel og Idu No

Madonna - 4 Minutes
Glass Candy - Candy Castle