be[¡]kon

7.4.08
 
Hæ öll.
Afsakið töfina. Var að gera þetta og svona.

Matmos - Supreme Balloon

Matmos datt í hug að sleppa öllum tilraunakenndum sömplum (t.d. úr fitusog, sniglahljóð og sæði) og gera plötu algjörlega án míkrófóna. Hérna eru bara synthar og rafhljóð, og alveg jafn fjölbreytt og þau eru mörg. Nýjir hljóðgervlar í bland við eldgömul tæki og tól. Allskonar fólk kemur við sögu m.a. Keith Fullerton Whitman og Marshall Allen sem spilaði með hljómsveit Sun Ra á tímabili, en hann leikur á E.V.I. (Electronic Voice Instrument) á laginu sem fylgir færslunni - sem er víst andardráttsstjórnaður oscillator. Snilld. Útkoman minnir svolítið á einhverskonar framtíðarsirkus þar sem ónýt vélmenni leika trúða og allir fílar og flugfimleikamenn eru hológramar (er til íslenskt orð yfir það?). Ágætis skemmtun en krefst þolinmæði og einbeitingar.
Matmos - Mister Mouth

Man Man - Rabbit Habits

Man Man gera aðra plötu með sínu afar sérstöku poppi sem gefur hinar ekkert eftir. Hún er samt alveg ótrúlega svipuð eldra dóti og ég er ennþá að reyna að gera upp við mig hvort það sé gott eða slæmt. Þeir geta átt það að þeir hljóma eins og ekkert annað (nema kannski Captain Beefheart, já og Tom Waits ókei ég tek þetta til baka) en ég beið plötunnar með dálítilli eftirvæntingu (takk pitchfork) og var dálítið að vona eftir einhverju meira, einhverju krassandi og frábæru. Ég þarf bara að hlusta á hana aðeins meira og spotta góðu lögin betur, auk þess að hlusta meira á eldri plötur og bera saman, þar sem ég hef ekki heyrt þær lengi.
Man Man - Big Trouble

Baltic Fleet - Baltic Fleet
Tékkið á þessu koveri!

Þessi hljómsveit gæti verið frábær leikhús-sveit. Eða gert dúndur kvikmynda-sándtrakk í feita heimspekilega stríðsádeilu indie-mynd. Þetta er instrumental post-punk-rock-kraut þar sem allt hljómar fáránlega tært og skýrt. Trommurnar eru með þeim svalari sem ég hef heyrt og öll píanó og svona hljóma eins og eitthvað af ( ) (Ég vil taka fram að eitt lag plötunnar heitir Reykjavik Promise, og lagið sem hér fylgir heitir Berlin, 8mm deep - en 8mm er víst aðal íslendingabar Berlínar...). Platan er langdregin og óspennandi, en maður getur látið hugan reika í leit að myndrænum hliðstæðum. Þá dettur manni að sjálfsögðu í hug kvikmynd, en ég hugsa að þetta tæki sig vel út live, í leikhúsi. En í stuttu máli, ef Klaus Dinger (R.I.P.), Kjartani Sveinssyni, Peter Hook og Jonny Greenwood hefði verið falið að semja saman leikhústónlist væri þetta útkoman. Djöfull hefði það verið gott band maður.
Talandi um Peter Hook var hann ekki að stofna einhverja Bassa-súpergrúppu? Hvað hét hún, Peter & The Hooks?
Baltic Fleet - Berlin, 8mm Deep

Foot Village - Friendship Nation
Veit nú ekki alveg með þetta kover samt:

Ég geymi náttúrulega mestu snilldina þar til síðast. Eins og sumir vita var ég mjög hrifin af Drum's Not Dead með Liars og einnig gAame með Aa. Þetta tribal noise sjitt fokkar mér upp. Og á þessari plötu er farið með þá hugmynd eins langt og hún kemst. Það er EKKERT ANNAÐ EN TROMMUR og hróp á þessum hálftíma sem platan er (svo bætast við remix frá m.a. Aa og Robedoor sem er líka alveg dúndurband). Þetta er frábær skemmtun fyrir alla ryþmaáhugamenn, hávaðafíkla sem og fólk með húmor fyrir kjánalegheitum í músík. Þar sem ég tilheyri öllum þessum hópum er ég í sjöunda himni og vonandi er einhver sem les þetta sem er sammála mér.
Foot Village - Narc Party (Let's Make It Fucked Up)

Svo er nýjasti mixdiskurinn frá Wighnomy Brothers á Freud am Tanzen frábær.

Annars langar mig að benda á að nú er búið að opna mjög mikilfenglegt vefsetur. pitchfork.tv er hafið og það er sko alls ekkert drasl. Djöfull kom mér á óvart úrvalið af tónlistarmyndböndum, þrælgóðum þáttum meiraðsegja er hægt að horfa á loudQUIETloud tónleikamyndina með Pixies. Allt ókeypis og þetta er líkast að horfa á DVD, svo góð eru myndgæðin. Þetta er ekkert youtube neitt. Djöfull er ég sáttur.