be[¡]kon

20.4.08
 
My Disco - Paradise

Ég á varla til orð yfir þessarri plötu. Það er kominn dágóður tími síðan ég hef átt erfitt með að anda sökum nýrrar tónlistar, en það er erfitt að fá ekki innilokunarkennd við að hlusta á þetta. Þessu Ástralska bandi tekst að yfirfæra einkenni minimal-dans tónlistar yfir í Alt-Rock/Punk búning. Einfalt endurtekið trommubeat - four to the floor bassatromma, hi-hat og snerill ásamt dimmum, djúpum bassalínum. Ofan á það bætist síðan pínandi endurtekning á ómstríðu gítarriffi og söngur sem hljómar eins og loopað sampl úr gömlu Slint lagi. Í þokkabót er enginn annar en Steve Albini sem tekur þetta upp. Ef Shellac myndu covera Villalobos myndi það hljóma einhvernveginn svona. Í stuttu máli ALVEG ÓÓGEÐSLEGA FOKKING SVÖL PLATA GUÐ MINN GÓÐUR! 9 Stutt og hnitmiðuð lög raðast í kringum eitt 9 mínútna langt skrýmsli af lagi sem sleppir ekki af þér taki þrátt fyrir fáránlega endurtekningu og ógurlega distortaðan gítarhljóm. Þið verðið aldrei söm eftir þetta.
My Disco - A Christ Pendant Comfort Her Neck


Nôze - Songs on the Rocks

Frönsku vitleysingarnir í Noze gera rétt eins og Hot Chip og minna mann á að tech-house mússík þurfi ekki að vera alvarleg. Þeir leika sér mjög skemmtilega með formið, nota ólíkleg hljóðfæri og ólíklega popp-króka til að gera grípandi og hressilega popp plötu sem á margt í ætt við franska fyrirrennara. Þetta er hallærislega kynþokkafullt og gerir grín að sjálfu sér, án þess að verða að einhverri þvælu. Þetta mun alveg örugglega vera mikið spilað þetta sumarið. Gaman gaman!
Nôze - Danse Avec Moi (feat. Dani Sicilliano)