be[¡]kon

10.12.03
 
Jæjajæjajæja...

Í kvöld eru muse tónleikar og í tilefni þess mun síðan ekki heita beikon heldur: hugsanir dauðvona trúleysingja...
voðalega hlakka ég til, aðeins örfáarklukkustundir þar til ég sé hið magnaða band...
Í morgun fann ég fyrir prófkviða í fyrsta sinn síðan ég var í samræmdu prófunum. Það var ótrúlega skrýtið... kannski var það út af þessum esspressó sem ég drakk fyrir prófið. Og tvöfalda latteinum...
En mér gekk þó bara vel. Betur en ég hafði búist við. Þetta var líka fyrsta ekki-þjóðhagfræði prófið mitt af þeim fjórum prófum sem ég hef farið í. Það er ekki voðalega gaman að fara í þrjú mismunandi þjóðhagfræði próf í einni viku... frekar mikið, ja, skull...
Ég var samt rétt í þessu að eignast hinn magnaða sólódisk Jonny Greenwood: Bodysong og er hann bara nokkuð frábær. Eiginlega mjög frábær.
Ég elska Jonny. Ég vildi að hann væri frændi minn.
Svo er David Bowie að skemmta dönum næsta sumar á hróarskeldu-hátíð og það lítur nokkuð mikið út fyrir að ég sé að fara, enda er Bowie lennon náungi... hún Erla er allavega búin að kaupa sér miða, hún má þó ekki fara ein...
Bara ef Radiohead væru líka að spila... og Pixies kannski, en þeir eru með eikkað re-union í gangi. Kings of Leon væri ég líka til í að sjá. Og auðvitað Beck.
Mmmm...

Á morgun fer ég í vinnuviðtal hjá dominos... spá í að fara keyra pizzur um bæinn, svo ekki láta ykkur bregða ef ég skyldi allt í einu birtast heima hjá ykkur með rjúkandi heita pizzu... mmm... pepperoni.........................................

Já, eftir próf verð ég virkari í bloggmálum. Ég reyni að lofa því allavega, samt verða nokkuð stífar æfingar á Lísu í Undralandi sem verður frumsýnd 17. janúar í tjarnarbíói. Verð gefið upp síðar. Vúhú.

Plöööötur:

Muse - Showbiz
Muse - Origin of Symmetry
Muse - Absolution
Jonny Greenwood - Bodysong (Original Soundtrack)