be[¡]kon |
|||||||||||||||||||||||||||||||
|
div class="%20ut&%20yfir&%20inn&%20undir"
align="center" color="#FFFFFF"
[/table]
Archives Apríl 2008 Mars 2008 Febrúar 2008 Janúar 2008 Desember 2007 Nóvember 2007 Október 2007 September 2007 Ágúst 2007 Júlí 2007 Júní 2007 Maí 2007 Apríl 2007 Mars 2007 Febrúar 2007 Janúar 2007 Desember 2006 Nóvember 2006 Október 2006 September 2006 Ágúst 2006 Júlí 2006 Júní 2006 Maí 2006 Apríl 2006 Mars 2006 Febrúar 2006 Janúar 2006 Desember 2005 Nóvember 2005 Október 2005 September 2005 Ágúst 2005 Júlí 2005 Júní 2005 Maí 2005 Apríl 2005 Mars 2005 Febrúar 2005 Janúar 2005 Desember 2004 Nóvember 2004 Október 2004 September 2004 Agúst 2004 Júlí 2004 Júní 2004 Maí 2004 Apríl 2004 Mars 2004 Febrúar 2004 Janúar 2004 Desember 2003 Nóvember 2003 Október 2003 September 2003 Ágúst 2003 Júlí 2003 Júní 2003 Maí 2003 |
30.12.03
Alltaf bætast listarnir við, voðalega er gaman af þessu, ekki satt?
ha, jú auuuðvitað... Halla er byrjuð aftur að blogga... pukinn.blogspot.com Annars fór ég á Lord Rock áðan (LOTR-ROTK) Hún var jafngóð og hinar tvær, líka sama myndin, svoað... Plötur? jájá, ókei... The Rapture - Echoes Kimono - Mineur Agressiv Radio 4 - Gotham! 28.12.03
![]() Power Rangers Movie! What movie Do you Belong in?(many different outcomes!) brought to you by Quizilla Ég hef aldrei séð þessa mynd... á hún við mig? 27.12.03
Veii....
Núna er árið 2003 að líða undir lok, svo að ég ætla að útbúa end-of-year lista, í minnsta lagi tvo, á hverjum degi sem eftir er ársins. Þá má finna hér Takk fyrir mig. Kommentið hér fyrir neðan, ég nenni ekki að setja upp kerfi þarna hinumegin.... Já, plötur: The Funerals - Lordy The Jesus & Mary Chain - Psychocandy Kimono - Mineur Agressiv Outkast - Speakerboxxx/The Love Below The Mars Volta - De-loused in the Comatorium 24.12.03
Jæja, þá er komið að þessu.
GLEÐILEG JÓL ALLIR SAMAN!!! Og hafið það ótrúlega gott um hátíðirnar. Þó efa ég að nokkur lesi þetta fyrr en á annan í jólum, en... vott ðö hei. Víííí.... Plötur: Sigur Rós - Ágætis Byrjun Björk - Post Björk - Vespertine Amelie - Sándtrakk Belle & Sebastian - If You're Feeling Sinister 18.12.03
Úúú... annað gúdsjitt blogg. Þessi heitir Þorleifur en er kallaður Tobbi. Núna ætla ég að fá mér brekkfast.
Hérna... vá hvað ég missti af þessu með Keikó. Ég var bara að lesa um þetta rétt í þessu. Helvíti sorglegt, og ég hef ekki einu sinni komið til vestmannaeyja.
Keikó, jú vil olveis hav a spesjal pleis in mæ hart. Æ löv jú. Beneventum var kreizí flott og það var heil grein eftir mig... ekkert mikill metnaður en ég er stoltur. Ég fattaði samt ekki forsíðuna. Hún var eitthvað vírd. Voðalega á ég erfitt með að blogga. Ég byrja að skrifa hluti og átta mig síðan á því hversu öööömurlega leiðinlegir þeir eru. Kannski ég hætti bara. Mig vantar innblástur. Eða bara hárblástur. Plástur? Maður þarf plástur þegar maður sker sig á pizzukassa. En ég gerði það í gær. Ég braut saman svona 500.000.000 pizzukassa og það var ekki þægilegt. Svo fékk ég að keyra út þegar eitthvað var að gera og ég komst að því að það eru fjórar týpur sem panta sér pizzu og fá hana senta heim. (Allavega í gær) 1. Stúdentar. Þeir hafa ekki frábæra eldhús-kunnáttu, eiga ekki bíl og ekki mikinn pening svo að þeir panta sér með 1 áleggstegund og kaupa ekki kók. 2. Tölvunördar. Þeir koma til dyra á sveittum bol og með gleraugu og borga eins hratt og þeir geta svo að þeir missi ekki af einni Counter-strike keppni. Þeir kaupa kók og brauðstangir. 3. Einstæðar mæður. Þær kaupa sparitilboð A. Þær geta ekki sótt því að það má ekki skilja krakkana eftir. 4. Fulli menntaskælingar á leiðinni á jólaball. Ég læt vita af fleiri týpum þegar ég hef unnið aðeins lengur, en ég held að það sé ekki mikið meira en þetta. Breytist kannski um helgina. Plötur:::: Björk - Homogenic Flaming Lips - The Soft Bulletin
Úúú... nýtt gæða-blogg frá henni Erlu eða Early eins og ég vil kalla hana en henni þykir gott að borða beikon-salat.
erlaogvaselind.blogspot.com
Mér finnst bloggið mitt ljótt. Éf einhver vill kenna mér eða hjálpa mér að gera síðuna mína flotta skal hún endilega hafa samband.
12.12.03
hmm... Muse?
Þeir spiluðu í gær... Mínus byrjuðu þó að spila á undan og voru bara með sitt verst performans ever, allavega af þeim sem ég hef séð. Þeir voru bara alltof mikið að einbeita sér í að vera rock-stars og gleymdu tónlistarmennskuni, útúr kókaðir auðvitað. Kom mér í frekar pirrað skap, verð ég að segja og drápu stemninguna sem ég hafði byggt upp yfir daginn. En það skipti ekki máli... ég kom mér fyrir svona í miðri höllini og beið eftir Matt og félögum með svona 6000 villtum krökkum og bjullum. (Þó leyndust nokkrir Lennonar inná milli). Það var reyndar ein túrbó-lágæst-últra-bjulla þarna í einhverjum tilklipptum Radiohead bol þannig að það sást í fjólubláa brjóstahaldaran hennar og svo var hún í sýru-blettótu gallapilsi. Ef þið sjáið hana megið þið færa mér hana - Dead or Alive. Radiohead skal ekki misnotast svona fyrir framan mig. Fólk sem misnotar Radiohead-mörtjandæs er skull. Ókei... Muse stigu á svið, hófu tónleikana á Apocalypse Please. Ljósin voru brjáluð. Rosaleg byrjun. Hysteria og New Born voru næst en ég bara sá ekkert og naut þeirra ekki eins og ég hefði getað notið þeirra. En ég var kominn á fínan stað er Citizen Erased byrjaði. Það var ótrúlegt, þá kom ég líka auga á hljómborðið/píanóið hans Matthews sem leit svolítið út eins og það hafi einu sinni verið notað sem tunglfar. Síðan kom í ljós voða flott skjámynd í lokakaflanum og þá varð ég húkkd. Næst spiluðu þeir Space Dementia sem er án efa besta lag þeirra Mjúsara og var nærmynd komið á fingur Matthews er hann spilaði á hljóðfærið sitt af einstakri snilld. Svo spiluðu þeir og spiluðu og var ég príttí mötj húkked allan tíman. Muscle Museum fór þó nokkuð í taugarnar á mér, alltof mikill krád plíser... og ég heyrði miklu meira í falska söng áhorfenda en í Matthew... jamms og kjamms. Aðrir hápunktar að mínu mati voru Butterflies and Hurricanes og Plug In Baby en þá var ég nokkuð meðvitundarlaus vegna hita. Í uppklappinu spiluðu þeir Blackout sem var sóóó bjútifúúll!!! Og síðast Stockholm Syndrome og þá lenti ég milli 5 sveittra hálfnaktra stráka sem nudduðu sér uppvið hvorn annan voðalega innilega. Þetta voru fínustu tónleikar, soldið pirrandi þó, þessi höll Laugardalsins... eitthvað við hana, ég naut ekki tónlistarinnar jafn vel og ér geri á litlum stöðum en þó... ég var í fínum fíling svona í miðjunni. Þeir máttu þó spila Hyper Music, Micro Cuts og Darkshines, Micro Cuts hafði meira að segja verið á nýlegum setlistum, en jaa, it had to be the way. Plata dagsins: The Mars Volta - De-loused In The Comatorium 11.12.03
Voðalega er linkalistinn minn orðinn fallegur, ný, lennon blogg sem koma mér í fíling hér til vinstri sem allir eiga að lesa.
10.12.03
Jæjajæjajæja...
Í kvöld eru muse tónleikar og í tilefni þess mun síðan ekki heita beikon heldur: hugsanir dauðvona trúleysingja... voðalega hlakka ég til, aðeins örfáarklukkustundir þar til ég sé hið magnaða band... Í morgun fann ég fyrir prófkviða í fyrsta sinn síðan ég var í samræmdu prófunum. Það var ótrúlega skrýtið... kannski var það út af þessum esspressó sem ég drakk fyrir prófið. Og tvöfalda latteinum... En mér gekk þó bara vel. Betur en ég hafði búist við. Þetta var líka fyrsta ekki-þjóðhagfræði prófið mitt af þeim fjórum prófum sem ég hef farið í. Það er ekki voðalega gaman að fara í þrjú mismunandi þjóðhagfræði próf í einni viku... frekar mikið, ja, skull... Ég var samt rétt í þessu að eignast hinn magnaða sólódisk Jonny Greenwood: Bodysong og er hann bara nokkuð frábær. Eiginlega mjög frábær. Ég elska Jonny. Ég vildi að hann væri frændi minn. Svo er David Bowie að skemmta dönum næsta sumar á hróarskeldu-hátíð og það lítur nokkuð mikið út fyrir að ég sé að fara, enda er Bowie lennon náungi... hún Erla er allavega búin að kaupa sér miða, hún má þó ekki fara ein... Bara ef Radiohead væru líka að spila... og Pixies kannski, en þeir eru með eikkað re-union í gangi. Kings of Leon væri ég líka til í að sjá. Og auðvitað Beck. Mmmm... Á morgun fer ég í vinnuviðtal hjá dominos... spá í að fara keyra pizzur um bæinn, svo ekki láta ykkur bregða ef ég skyldi allt í einu birtast heima hjá ykkur með rjúkandi heita pizzu... mmm... pepperoni......................................... Já, eftir próf verð ég virkari í bloggmálum. Ég reyni að lofa því allavega, samt verða nokkuð stífar æfingar á Lísu í Undralandi sem verður frumsýnd 17. janúar í tjarnarbíói. Verð gefið upp síðar. Vúhú. Plöööötur: Muse - Showbiz Muse - Origin of Symmetry Muse - Absolution Jonny Greenwood - Bodysong (Original Soundtrack) |
||||||||||||||||||||||||||||||