be[¡]kon

17.8.07
 
Nú eru tónleikar í sjónvarpinu en Vala kýs að horfa á grenjufitubolluþátt #44596 á s1. Ég vil líka ekkert horfa á einhverja bankatónleika.
Í dag hóstaði ég blóði. Ég er með berkla.
Í tilefni af því ætlar götuleikhúsið að setja upp "MOULIN ROUGE!" á morgun klukkan 14 og ég verð í aðalhlutverki sem þarna hóran sem NK lék og dó svo úr berklum.

Ég fór á macdónalds áðan. Og þeir voru alls ekkert (mac)dónal(ds)egir!

Maður í drive-thru: Góða kvöldið og vertu hjartanlega velkominn á makkdónalds! hvað má bjóða þér?!
Ég: Uuu máltíð eitt
M: Má bjóða þér að stækka máltíðina?!!
Ég: uuu já
M: og hvað má svo bjóða þér að drekka?!!!!
Ég: uuu kók læt.
svo hélt þetta áfram eins og venjulegt makkdónalds samtal. þið vitið öll hvernig þau hljóma ekki satt?

HEI!!!!