be[¡]kon

5.5.08
 
Ég er dálítið hrifin af þessu "eitt nýtt, eitt gamalt" fyrirkomulagi! Á ég ekki að halda því áfram?


Pocahaunted - Island Diamonds (2008)

Þetta band er búið að mynda ákveðinn cult-status, allt sem kemur út með þeim kemur á litaðan sjaldgæfan vínil eða á kassettu, með heimagerðu artworki og allt voða erfitt að nálgast (nema á netinu að sjálfsögðu). Tónlistin er einnig afar sérstök, og býður þannig uppá cult-fylgismenn. Tribal hávaðamússík, með nóg af delay-effectum og þannig - hljómar e.t.v. eins og að horfa á magadans í eyðimörk eftir slatta af framandi eyðimerkur bruggi og reyk. Kynþokkafullur hávaði í algjöru móki. Mjög sérstök upplifun. Ég var svo heppinn að ná mér í eina plötu með þessu fólki í New York um daginn, en síðan þá eru komnar út tvær nýjar plötur, og þessi er alveg merkilega góð, og tekin upp í stúdíói - ekki á tónleikum eins og margar útgáfur þeirra.

Pocahaunted - Gehetto Ballet

Selda - Selda (1976)

Selda er tyrknesk þjóðlaga-söngkona. Á þessarri plötu gerir hún psych/funk tónlist. Hún syngur yndisfagrar þjóðlegar arabískar sönglínur yfir funky trommum, feitum bassalínum, heavy gítar og skemmtilega kjánalegum synthum. Ótrúlega steikt mússík, en algjört gull þó - dansvæn og dáleiðandi, kómísk og kosmísk. Þetta er líka tilvalið fyrir hip-hopp pródúsera, ég man einmitt eftir broti úr fylgjandi lagi á Chrome Children 2 safninu frá Stones Throw...
Selda - Yaz Gazeteci Yaz