be[¡]kon |
|||||||||||||||||||||||||||||||
|
div class="%20ut&%20yfir&%20inn&%20undir"
align="center" color="#FFFFFF"
[/table]
Archives Apríl 2008 Mars 2008 Febrúar 2008 Janúar 2008 Desember 2007 Nóvember 2007 Október 2007 September 2007 Ágúst 2007 Júlí 2007 Júní 2007 Maí 2007 Apríl 2007 Mars 2007 Febrúar 2007 Janúar 2007 Desember 2006 Nóvember 2006 Október 2006 September 2006 Ágúst 2006 Júlí 2006 Júní 2006 Maí 2006 Apríl 2006 Mars 2006 Febrúar 2006 Janúar 2006 Desember 2005 Nóvember 2005 Október 2005 September 2005 Ágúst 2005 Júlí 2005 Júní 2005 Maí 2005 Apríl 2005 Mars 2005 Febrúar 2005 Janúar 2005 Desember 2004 Nóvember 2004 Október 2004 September 2004 Agúst 2004 Júlí 2004 Júní 2004 Maí 2004 Apríl 2004 Mars 2004 Febrúar 2004 Janúar 2004 Desember 2003 Nóvember 2003 Október 2003 September 2003 Ágúst 2003 Júlí 2003 Júní 2003 Maí 2003 |
18.5.08
{{{Sunset}}} - Bright Blue Dream (2008)
![]() {{{Sunset}}} er verkefni manns að nafni Bill Baird sem var fyrir nokkrum árum í hljómsveitinni Sound Team frá Austin. Sú sveit fékk sínar 15 mínútur af frægð fyrir nokkrum árum sem upphitunarband á Arcade Fire/Bowie túrnum. Af einhverjum ástæðum hætti bandið þá - mögulega til að hætta á toppnum, en bassaleikari sveitarinnar hefur verið ansi iðinn að gefa út og er þetta í raun hans þriðja plata síðan bandið hætti. Svo eru víst fleiri plötur til, frá Sound Team dögum hans sem ég ætla að kanna mér því þessi hér plata gæti mögulega orðið ein af mínum uppáhaldsplötum þetta árið. Þetta er orðabókardæmi fyrir herbergis-popp. Draumkennt, hægt, lo-fi en þú getur dillað tánum eða hausnum stöku sinnum. Þó finnst mér oftast þegar ég hlusta á herbergispopp, þá verður það að einhverjum bakgrunni, þú hefur þetta í gangi þegar þú ert á myspace, tekur til - þú gerir alltaf eitthvað annað á meðan. Ólíkt því, tekur þessi plata algjört tak á þér og sleppur þér alls ekki. Hún sýgur þig inn í byrjun, verður meira og meira grípandi og sannfærir þig um að hér séu basic poppsmellir í gangi... svo kemur sjötta lagið, titillag plötunnar, 14 mínútur að lengd, en virðist endast í klukkutíma - hægir á öllu tímaskyni. Karabískar stáltrommur heyrast í fjarska og post-rock gítardrón leiðir þig á vit draumanna. Þar á eftir ertu algjörlega kominn inní draumaheim, þar til kunnulegt lúðrastef vekur þig... Ég gæti skrifað miklu miklu meir um þessa plötu, en ég vil helst ekki skemma fyrir ykkur. Hér er öll platan, því hún er ótrúleg, en ég skora á ykkur til að kaupa þetta líka ef þið fáið tækifæri til: Fyrsti hluti Annar hluti |
||||||||||||||||||||||||||||||